Bærinn að Svínavatni í Húnavatnshreppi. Á hlaði stendur Steingrímur Jóhannesson bóndi með kíki. Bustirnar eru f.v. Betri stofan - en fyrir ofan hana geymsluloft sem gengið var í úr hlóðaeldhúsi - sem var baka til. Stofan er nú á byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði. Bæjardyr voru fremur rúmgóðar. Þriðja burst var geymsla. Lengst til hægri var smiðjan. Að baki þessum húsum var baðstofan.
Hveravellir í Reykjahverfi. Fyrsta gróðurhúsið var byggt 1933 og annað 2-3 árum síðar og sést það á myndinni. Fyrir framan húsið er Atli Baldvinsson (1905-1980) með dóttur sína sér við hönd - Sigríði Atladóttur (f. 1933) - síðar á Laxamýri. Með þeim er systursonur Atla - Baldvin Haraldsson (1924-1943).
Fólk og hestar á hlaðinu í Heiðarseli. Þorbjörg Schweizer situr á hesti en Sveinbjörg systir hennar talar við hana. Árni Jónsson hugar að reiðtygjum á hesti Þorbjargar. Hugsanlega er þarna mynduð brottför Þorbjargar og Brunos - en þau fluttust til Þýskalands.
Á Höfða í túninu í Miðdal í Mosfellssveit. Í hægra horninu er grafreitur fyrir dýr þar sem börnin í Miðdal höfðu yfirsungið fallin dýr. Fremstur er faðir Georg Lang prestur. Þá Karolína Sigríður Einarsdóttir (1912-1962) frá Miðdal - Þá Annie Schweizer - Sigurður Ólafsson hestamaður og söngvari og loks Leo Schweizer - sem snýr baki í myndavélina.
Útsýni til suðurs frá Heiðarseli á Síðu. T.h. eru Svínadalir og Þorgrímsheiði. Fjaðrargljúfur fyrir miðri mynd og Heiðarásar t.v. Hlaðnir torfgarðar (túngarðar) eru í forgrunni - en bil var haft á milli torfstungunnar (plælunnar) til að koma í veg fyrir að jarðvegurinn rynni til - enda hann gljúpur eftir Kötlugosið 1918. Nýslegið er fyrir ofan garð og sjást ljáför greinilega. Tjald Brunos og Þorbjargar fyrir miðri mynd - þá bæjarhúsin. T.h. er Ekruhesthúsið.
Hemla í V-Landeyjahreppi. Íbúðarhús og útihús. Við bæinn stendur tjaldbúð sem Rangæingar reistu á Alþingishátíðinni 1930 og nefndu Rangæingabúð. Myndin er tekin 15. ágúst 1938 á útfarardegi Hólmfríðar Magnúsdóttur húsfr. í Hemlu. Bíllinn er af Nash gerð og bar skráningarnúmerið L-12.
,
,
,
,Sjá einnig BS 2754
Nanna Jónsdóttir (1907-1976) frá Halldórsstöðum í Reykjadal í dyrum á prestsbústaðnum á Vatnsenda í Ljósavatnsskarði. Fyrir framan hana eru þrjú börn hennar og Þormóðs Sigurðssonar. F.v. Vigdís 1931 - Kristbjörg (f. 1933) og Árni (f. 1932).
Fjölskyldan framan við bæinn að Leifsstöðum í Svartárdal Hún. F.v. Þóra (f.1925) - síðar í Hvammi. Sigurbjörg (f. 1931) síðar húsfr. á Leifsstöðum. Björn (1930-1988) - Guðrún Sigríður (1924-1975). Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja (1894-1959). Aðalsteinn (f. 1930) síðar bóndi Leifsstöðum. Sigurður Benediktsson bóndi (f. 1885 d. 1974) - Soffía (1917-1968) heldur á Hilmari Eydal Valgarðssyni (1934-1974) syni sínum. Guðmundur (f. 1922 d. 1996) og Sigurður (f. 1926 d. 1984)