Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 128 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn Guðjón Ingimundarson (1915-2004)
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Skipulagsmál íþróttasvæðis 2002-2003

Ýmis gögn varðandi skipulag íþróttasvæðisins á Sauðárkróki, samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið, athugasemdir við deiliskipulag og hans eigin hugleiðingar um framkvæmd málsins.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmislegt

Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Feykir 1987-2003

Nokkrar greinar sem Guðjón skrifaði og sendi til fréttablaðsins Feykis á Sauðárkróki.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Greinargerðir

Greinargerðir frá Fræðslunefnd K.S. til aðalfundar Kaupfélags Skagfirðinga 1977 og 1978.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Námsflokkar 1974-1978

Ýmis gögn tengd Námsflokkum - fullorðinsfræðslu, eftirfarandi fög voru meðal þess sem kennt var: enska, bókfærsla, fatasaumur, vélritun, danska, siglingafræði og fleira. Jafnframt voru haldin margvísleg styttri námskeið. Guðjón stofnaði til og stjórnaði Námsflokkum á Sauðárkróki á árunum 1974-1978.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Dagbækur

Dagbók frá 1964 og dagbókarbrot frá 1983. TRÚNAÐARGÖGN!

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmis gögn

Ýmis gögn sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar, tengd starfsemi hans innan Kaupfélags Skagfirðinga. Minnisbók, reglugerð fyrir Menningarsjóð K.S. og bréf frá 8. janúar 1961 sem er óvíst hvort sé til Guðjóns eða frá honum. Efni bréfsins er bókhald Kaupfélagsins á þessum tíma.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Heimildir um sundkennslu í Skagafirði

Margvíslegar heimildir frá mismunandi aðilum um sundkennslu í Skagafirði, m.a. má finna þarna heimildir frá Jóni Sigurðssyni á Reynistað, Hannesi Hannessyni á Melbreið, Páli Sigurðssyni á Hofi, og Ingibjörgu Jóhannsdóttur á Löngumýri.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Kaupfélag Skagfirðinga 1954-1991

Ýmis gögn tengd starfsemi Kaupfélagi Skagfirðinga sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Guðjón var endurskoðandi Kaupfélags Skagfirðinga til fjölda ára, sat í stjórn Menningarsjóðs KS í mörg ár og var formaður fræðuslunefndar þess um skeið.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Erindi til stjórnar KS 1954

Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Fundargerðir 1954-1994

Ýmsar fundargerðir sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar og tengjast þátttöku hans í bæjarstjórnarmálum Sauðárkrókskaupstaðar.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Dagur Akureyri 1954-1996

Margvíslegar greinar sem Guðjón skrifaði og sendi dagblaðinu Degi á Akureyri, bæði fréttir úr Skagafirði og ýmsar vangaveltur.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Fjármál 1954-1980

Ýmis fjármálagögn sem komu úr fórum Guðjóns og tengjast bæjarstjórnarmálum á árunum 1950-1974.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Dögun 1954

Fjögur tölublöð af Dögun, blaði þjóðvarnarmanna á Sauðárkróki. Ábyrgðarmaður blaðsins var Ingi Sveinsson.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Fundargerðir

Fundargerðir sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar og tengjast starfi hans innan UMFÍ og ÍSÍ.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ávörp og greinar

Mestmegnis ávörp flutt af Guðjóni Ingimundarsyni við hin ýmsu tilefni og ein samantekt um starfssemi ungmennafélaga í Skagafirði.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Erindi frá UMSS 1948-1996

Erindi send frá Ungmennasambandi Skagafjarðar (UMSS) til mismunandi aðila á árabilinu 1948-1996, Guðjón Ingimundarson undirritar flest þeirra.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmis erindi 1948-1964

Ýmis erindi frá Íþróttanefnd Ríkisins, FRÍ, íslenskum getraunum og SSÍ sem bárust Guðjóni Ingimundarsyni v. starfs hans innan íþróttahreyfingarinnar.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Bréf frá Árna Guðmundssyni 1947-1958

Bréf frá Árna Guðmundssyni fyrrverandi skólastjóra Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Árni var fæddur á Sauðárkróki. Guðjón og Árni virðast hafa skrifast á árlega á 11 ára tímabili.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Niðurstöður 1 to 85 of 128