Print preview Close

Showing 24 results

Archival descriptions
Ungmennafélag Holtshrepps English
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

5 results with digital objects Show results with digital objects

Ungmennafélag Holtshrepps

  • IS HSk E00013
  • Fonds
  • 1919 - 1971

Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.

Ungmennafélag Holtshrepps

Fundagerðabók Ungmennafélags Holtshrepps 1953-1971

Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.

Ungmennafélag Holtshrepps

Fundagerðabók Ungmennafélags Holtshrepps 1926-1942

Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.

Ungmennafélag Holtshrepps

Fundagjörðabækur

Fundagjörðabækur Málfundarfélagsins og Ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1945.
Fundir félagsins enduðu með ýmsu móti eins og segir í Gjörðabók 1931 - 1939, í fundargerð frá 10.febrúar 1937.
" Eftir fundinn settust allir að Chókólaðidrykkju og kaffi að þvi loknu, dansað, spilað, hoppað og hlegið, farið í reiptog og hressskonar gleðskapur um hönd hafður. Þar til dagsins fagra drottning reis úr rúmi Títusar og roðaði fjöll og minnti menn á hin daglegu störfin. Þannig endaði þessi aðalfundur ungmennafélags Von. Húrra. "

Málfundafélagið Von í Stíflu

Ársreikningabók Ungmennafélags Holtshrepps 1935-1948

Innbundin og handskrifðuð bók með línustrikuðum síðum, í bókinni eru bókhaldsfærslur frá 1935-1948, ekki nema hluti af bókinni er nýttur fyrir reikningshalds, mikið er af auðum blaðsíðum. Bókin er með límborða á kjölnum og er ágætlega varðveitt.

Ungmennafélag Holtshrepps

Fundagjörðabók ungmennafélagsins Von 1939-1945 ásamt lögum og félagatali ungmennafélags Holtshrepps 1949-1958

Fundagjörðabók ungmennafélagsins Vonar 1939-1945 ásamt lögum og félagatali ungmennfélags Holtshrepps 1949-1958. Síðasta fundagjörð U.m.f.V. er frá 15.4.1945 en ekki kemur þar fram að félagið sé formlega lagt niður. Erfitt hefur þó verið að halda félagsskapnum gangandi því í fundargjörð frá 29.3.1945 kemur fram að félagsmenn ræddu hvort leggja ætti félagið niður, ekki síst þar sem "... svo fáir félagsmenn eru á félagssvæðinu og út lit fyrir að þeim muni fækka en þá meira af völdum Fljótarvyrkjunar, þar sem félagssvæðið Stíflan legðist að mestu undir vatn."
Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er í góðu ástandi.

Málfundafélagið Von í Stíflu

Fundargerð 21.03.1961

Fundargerðin er hanskrifuð á blað í stærðinni A4. Skrifað er báðu megin en á bakhlið eru einnig einhvers konar útreikningar sem snúa að búfjárhaldi.

Ungmennafélag Holtshrepps