Rímnabókin Æfintýrið Jóhönnuraunir. Á titilsíðu stendur: "Æfintýrið Jóhönnuraunir. Snúð af þýsku undir íslenzk fögur rímnalög af Snorra Bjarnasyni presti til Staðar í Aðalvík 1741 og síðan að Húsafelli 1757-1803. Útgefandi: Þorlákur Reykdal. Þriðja útgáfa. Reykjavík 1904. Prentsmiðja Frækorna." Bókin er innbundin í stærðinni 8,3x15,7 cm. Kápan er aðeins farin að losna en bókin heilleg að öðru leyti.
Fæðingarsálmar. Á titilsíðu stendur: "Fæðingarsálmar orktir af sál. Gunnlaugi Snorrasyni, fyrrum presti til Helgafells og Bjarnarhafnar safnaða. Kaupmannahöfn 1821. Prentað hjá bókbindara P.E.Rangel." Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Skjöl úr fórum Gunnars Oddssonar í Flatatungu á Kjálka. Gamlar bækur, tímarit ungmennafélagsins Framfarar og gögn Veiðifélags Skagfirðingar Héraðsvatnadeildar. Gögnin voru afhent úr dánarbúi Gunnars.
Sálmaval við helgidagalestur í heimahúsum. Á titilsíðu stendur: "Sálmaval við helgidagalestra í heimahúsum. Samið hefur sjera Grímur sál. Grímsson prestur að Barði í Fljótum. Ásamt með nokkrum helgidagabænum, eptir ýsma merkispresta. Kostnaðarmaður J. Grímsson. Akureyri í prentsiðju norður- og austur-amtsins, af H.Helgasyni 1857." Bókin er innbundin í stærðinni 10,4x12,9 sm. Síðurnar orðnar nokkuð slitnar og óhreinar en bókin annars heilleg. Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Rímnabókin Varabálkur. Á titilsíðu stendur: "Varabálkur, kveðinn af Sigurði hreppstj. Guðmundssyni. Kostnaðarmenn: Björn Jónsson, Stefán Stefánsson. Akureyri, Pretnaður í prentsmiðju Norður- og austur amtsins. B.M.Stephánsson. 1872." Bókin er innbundin í stærðinni 10,5x16,2 cm. Ástand hennar er gott en síðurnar nokkuð upplitaðar.