Fólkið á Syðstu-Grund 1927-1928. Frá vinstri: Efemía Jónsdóttir Mannskaðahóli- Salóme Halldórsdóttir síðast í Sólheimagerði hjá Gísla Gottskálkssyni sem var sonur hennar og stendur við hlið hennar og loks er Garðar Jónsson síðar skólastjóri í Hofsósi. Keypt 1980.
Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hún dvaldist á Bakka í Hólmi og síðar í Húsey 1917 til 1932. Móðir Hjartar Vilhjálmssonar, bifreiðastjóra á Sauðárkróki. Myndin tekin á Bakka 1928. Tilgáta: Barnið gæti heitið Sigurður Steindórsson.
Hópur fólks gæðir sér á nesti við torfbæ. Í bakgrunni er fallega hlaðinn veggur. Í skýringum við myndina segir "mjólkurdrykkja og skyrát." Myndin sennilega tekin að Saurbæ í Eyjafirði í september 1927.