Bók í A5 broti, heftuð. 32 blaðsíður. Þýsk bók um Ísland. Kápan er rifin og hefur verið límd á. Bókin hefur verið brotin saman og er því illa farin. Umslag fylgir bókinni sem Gerda Trill hefur sent Sæmundi Dúasyni.
Bókin er 30 síður, auk kápu. Bókin er gefin út í Reykjavík af Leiftri. Hún er illa farin, síðurnar lausar og slitnar og rifnað hefur af hornum nokkurra þeirra.
Minnisbókin er innbundin, í stærðinni 16,4 x 9,7 sm. Í hana eru skráð viðurnefni manna í Ísafjarðarsýslum. Á forsíðu er ritað: ""Nokkur viðurnefni og uppnefni í Ísafjarðarsýslu. Uppskrifuð eftir skrá er fyrir lá í Vigur, 1961."
Stílabók í A5 broti, alls 74 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Það varðar sýsluvegagjald og flutning á berklasjúklingi. Ástand skjalsins er gott.
Stílabók í A5 broti, alls 89 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Varðar ástand sýsluvega. Undirritað af Lúðvík Kemp. Bókin er nokkuð óhrein en heil.
Ljóðmæli / Hjálmar Jónsson frá Bólu ; Jónas Jónsson gaf út Hjálmar Jónsson 1796-1875 (frá Bólu) Reykjavík : Menningarsjóður, 1942 Íslensk úrvalsrit xlvii, 112 bls. : teikningar ; 18 sm.
Bókin er innbundin og er 18 x 12 cm að stærð. Titill hennar er "Lísa og Pétur." Höfundur Óskar Kjartasson. Skv. leitir.is er bókin gefin út í Reykjavík 1931. Útgefandi Ólafur Þ. Stefánsson. Prentuð í Ísafoldarprentsmiðju. Bókin er nokkuð slitin.
Kristilegur barnalærdómur. Skýring á fræðum Lúters hinum minni eftir Thorvald Klaveness prest í Kristjaníu. Þórhallur Bjarnason íslenzkaði. Reykjavík: Kostnaðarm. Sigfús Eymundsson, 1905. Prentsmiðjan Gutenberg. Þriðja prentun.
Kenslubók í esperantó : bygð á Th. Cart: L'Esperanto en dix leçons : ásamt orðasafni með íslenskum þýðingum / eftir Þorstein Þorsteinsson. Reykjavík : Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar, 1909. viii, 104 bls. ; 20 sm.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Útgefið hefti í stærðinni 19,9 x 12,9 cm. Jónas Hallgrímsson. Minningar-ræða haldin í Reykjavík 11. dag Marz-mánaðar 1900 að tilhlutan Stúdentafélagsins. Eftir Jón Ólafsson. Alls 22 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin.
Innbundin bók með handskrifuðum kveðskap. Á forsíður stendur: "Eitt æfintýri er kallast Jóhönnu raunir á þýsku útlagt og á ljóðmæli snúið af Snorra Björnssyni presti að Húsafelli."
Innbundin bók í stærðinni 38x23 cm. Í bókinni eru handskrifaðar færslur varðandi tekjur og gjöld umboðsmanns Happdrættis HÍ. Um frumrit er að ræða. Bókin er í heillegu ástandi.
Skráningarbók (kladdi) sem í eru færðar innborgaðar póstávísanir og póstkröfuávísanir fyrir bréfhirðinguna á Silfrastöðum árin 1928-1944. Bókin er innsigluð.
Útgefið hefti í stærðinni 20,8x13,5. Horfurnar eftir Lárus H. Bjarnason. Alls 14 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin. Pólitískt rit.
Útgefið hefti í stærðinni 10 x 17,7 cm. Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eftir Snæbjörn Jónsson með formála eftir síra Einar Thorlacius prófast. Gefið út í Reykjavík 1931 af Ísafoldarprentsmiðju.
Skjöl úr fórum Gunnars Oddssonar í Flatatungu á Kjálka. Gamlar bækur, tímarit ungmennafélagsins Framfarar og gögn Veiðifélags Skagfirðingar Héraðsvatnadeildar. Gögnin voru afhent úr dánarbúi Gunnars.
Bókin er innbundin í stærðinni 17x21,4 sm. Hún er 300 tölusettar bls og þar af er ein auð síða. Með liggur uppkast að vélrituðu bréfi til Rögnvaldar Jónssonar á Tyrfingsstöðum sem var laust inni í bókinni.
Bókin er innbundin og er 16,3 x 19,9 sm að stærð. Bókin er 212 tölusettar síður. Á fremstu 17 síðurnar eru ritaðar fundargjörðir en aftan við miðja bókina eru samtals 37 síður sem á eru rituð ýmis minnisatriði vegna kosninga, líklega einnig frá árinu 1944.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 22,5x29,6 cm. Bókin er 200 númeraðar síður, þar af eru 74 óskrifaðar. Þetta er síðasta fundargerðarbókin, en sýslunefnd var aflögð árið 1988. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.