Bókin er innbundin og er 18 x 12 cm að stærð. Titill hennar er "Lísa og Pétur." Höfundur Óskar Kjartasson. Skv. leitir.is er bókin gefin út í Reykjavík 1931. Útgefandi Ólafur Þ. Stefánsson. Prentuð í Ísafoldarprentsmiðju. Bókin er nokkuð slitin.
Útgefið hefti í stærðinni 10 x 17,7 cm. Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eftir Snæbjörn Jónsson með formála eftir síra Einar Thorlacius prófast. Gefið út í Reykjavík 1931 af Ísafoldarprentsmiðju.
Skýrsla í stærðinni 21,5 x 14, 6 cm. Sjerprentun úr Lögrjettu. Stefnuskrá Landvarnarmanna eftir Jón Þorláksson. Viðlagasjóður eftir Civis. Ísafold á Suðurnesjum. Bjefkafli að sunnan. Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg. 1907. Ritið er 16 bls að meðtalinni kápu. Nokkuð skemmt af óhreindindum og upplitað.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggðasamlags um rekstur skólaskrifstofu Skagfirðinga, fulltrúaráð. Fundir frá 2. maí 1996-25. febrúar 1997 (2 fundir). Bls. 1-10 eru útfylltar. Með liggur undirskriftablað frá 27. mars 1998 en engin fundargerð frá þeim fundi.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggingarnefndar Grunnskóla Sauðárkróks 14.01.1998-03.10.2001. Bls. 1-31 útfylltar. Með liggja fundargerðir á lausum, prentuðum blöðum, nr. 25-30.
Bókin er innbundin stílabók í stærðinni 22,5 x 18 sm. Í hana eru færð útlán félagsins á árunum 1939-1953. Búið er að klippa nokkrar blaðsíður fremst úr bókinni.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17,5x21 cm. Bókin er 221 númeraðar síður, þar af 3 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni að hluta. Bókin er innsigluð.
Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók fyrir fyrirtæki og stofnanir, vinnubók fyrir einstaklinga, höfuðbók fyrir viðskiptamenn A-Þ og skilagrein Kreppulánasjóðs.
Smárit sem inniheldur reglur um lyf. Á titilsíðu stendur: "Reglur um lyfjagreiðslur sjúkrasamlaga. Útgefandi: Tryggingastofnun ríkisins. Reykjavík 1945:."
Bókin er 52 síður í A5 broti, auk kápu. Hún inniheldur 52 ljósmyndir af húsum, auk grunnteikninga. Texti grunnteikninganna er á ensku. Bókin er gefin út í Reykjavík af Haraldi Jónssyni byggingameistara.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 18,6x22,6 cm. Bókin er 82 númeraðar síður, sem eru allar fullskrifaðar. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 21,2x30,5 cm. Með liggur ljósrit af fundarboði sem er á lausu blaði aftast í bókinni. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Bókin er innbundin í stærðinni 17x21,4 sm. Hún er 300 tölusettar bls og þar af er ein auð síða. Með liggur uppkast að vélrituðu bréfi til Rögnvaldar Jónssonar á Tyrfingsstöðum sem var laust inni í bókinni.
Bókin er heftuð og er í A5 broti. í henni eru eyðublöð fyrir tilkynningar um fasteignamat og eru nokkur þeirra útfyllt. Á forsíðu eru skrifaðar ýmsar tölur, einhvers konar útreikningar.
Bókin er innbundin í stærðinni 9,5x12,9 sm. Á titilsíðu stendur: "Bent Rasmussen: Spedjer kogebog. K.F.U.M. spedjernes instruktionshaandböger. III. De unge forlag. I Hovedkommission: O. Lohse, Köbenhavn. MCMXXIV." Bókin er í góðu ásigkomulagi.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.
Framan á bókinni stendur Kvenfélag Holtshrepps og að það sem sé í bókinni hafi verið fært í aðra bók með útskýringum. (Þessi bók var því ekki ljósmynduð). Bókin er í ágætu ásigkomulagi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1944" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1944-1945. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Óinnbundið hefti. Reynsla um ormalyf 1933-1935 eftir Níels P. Dungal. Sérprentun úr Búnaðarritinu. Gefið út í Reykjavík af Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg árið 1936. 18,6x12,5 sm
Bók í A5 broti, heftuð. 32 blaðsíður. Þýsk bók um Ísland. Kápan er rifin og hefur verið límd á. Bókin hefur verið brotin saman og er því illa farin. Umslag fylgir bókinni sem Gerda Trill hefur sent Sæmundi Dúasyni.
Fimtíu Píslar-Hugvekjur útaf Pínu og Dauda Drottins vors Jesú Krists / samdar af Síra Vigfúsi sál. Jónssyni Presti ad Stød í Stødvarfirdi Vigfús Jónsson 1711-1761 (Stöð, Stöðvarfirði) höfundur. Kaupmannahøfn, 1851. 352 bls. ; 19 sm. [2. útg.]. Kæapan er laus frá bókinni, að öðru leyti er hún í góðu ásigkomulagi.
Fimmtíu Passíu Sálmar / kvednir af Hallgrími Péturssyni, Sóknarpresti til Saurbæar á Hvalfjardarstrønd, frá 1651 til 1674. Hallgrímur Pétursson 1614-1674 höfundur. Reykjavík : Prentsmiðja Islands : Einar Þórdarson, 1855 214, [1] bls. ; 15 sm. Kápan er laus frá bókinni en annars er hún í góðu ásigkomulagi.
Skráningarbók fyrir póstsendingar. Bókin er innbundin og í hana eru færðar póstsendingar frá Silfrastöðum 1904-1959. Með liggja póstsendingaskrár og fylgibréf.
Smárit í stærðinni 22 x 13, 6 cm. Skýring á minningarbréfinu um þúsund ára byggingu Íslands eptir Benedikt Gröndal. Kaupmannahöfn. Prentað hjá S. Trieer. Ritið er alls 64 bls. Kápu vantað. Ritið er nokkuð skemmt af sliti og óhreinindum.
Hefti í stærðinni 16,2 x 11,8 cm. Heftið fjallar um Sólveigu Eiríksdóttur, sem hafði viðurnefnið Lúsa-Sólveig. Útg. Fimmmenningarnir. Akureyri 1947. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Heftið er 40 bls., auk kápu.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,9 cm. Hún inniheldur uppskrift af leikþætti. Rithöndin er ekki Péturs, en gæti verið Guðrúnar Jónsdóttur, frænku hans, sem bjó á Hofi í Vesturdal. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina. Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970. Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.
Stílabókin er í stærðinni 20 x 16,5 cm. Bókin inniheldur m.a. sögn um Vatnsfjarðar-Kristínu, og sögn um ætt og afkomendur séra Einars Grímssonar á Knappstöðum í Stíflu. Ástand bókarinnar er gott.