Stílabók í A5 broti, alls 89 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Varðar ástand sýsluvega. Undirritað af Lúðvík Kemp. Bókin er nokkuð óhrein en heil.
Stílabók í A5 broti, alls 74 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Það varðar sýsluvegagjald og flutning á berklasjúklingi. Ástand skjalsins er gott.
Minnisbókin er innbundin, í stærðinni 16,4 x 9,7 sm. Í hana eru skráð viðurnefni manna í Ísafjarðarsýslum. Á forsíðu er ritað: ""Nokkur viðurnefni og uppnefni í Ísafjarðarsýslu. Uppskrifuð eftir skrá er fyrir lá í Vigur, 1961."
Bókin er 30 síður, auk kápu. Bókin er gefin út í Reykjavík af Leiftri. Hún er illa farin, síðurnar lausar og slitnar og rifnað hefur af hornum nokkurra þeirra.
Bók í A5 broti, heftuð. 32 blaðsíður. Þýsk bók um Ísland. Kápan er rifin og hefur verið límd á. Bókin hefur verið brotin saman og er því illa farin. Umslag fylgir bókinni sem Gerda Trill hefur sent Sæmundi Dúasyni.
Innbundin fundargerðarbók. Fundagerðir nefndar um byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða 06.12.2000-16.10.2001 (nr 1-9). Fundargerðir nr 3 og 4 á lausum, prentuðum blöðum.
Hið nýa testamenti drottins vors Jesú Krists. Akureyri : Friðrik H. Jones ; London : Scripture Gift Mission, 1903. 380 bls. ; 14 sm. Kápu vantar á bókina.
Oliver Twist eftir Charles Dickens. Þýtt hefur Páll E. Ólason. Reykjavík: Þorvarður Þorvarðsson gaf út, 1906.Prentsmiðjan Gutenberg. Á saurblaði og titilblaði er bókin merkt Guðjóni Jónssyni á Tunguhálsi.
Bók í stærðinni 10,7x 7,2 cm. Kápu og titilblað vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir. ÁYfirskrift fremstu blaðsíðunnar er Dagverðareyrarmenn. Bókin er 112 bls.
Fimmtíu Passíu Sálmar / kvednir af Hallgrími Péturssyni, Sóknarpresti til Saurbæar á Hvalfjardarstrønd, frá 1651 til 1674. Hallgrímur Pétursson 1614-1674 höfundur. Reykjavík : Prentsmiðja Islands : Einar Þórdarson, 1855 214, [1] bls. ; 15 sm. Kápan er laus frá bókinni en annars er hún í góðu ásigkomulagi.
Fimtíu Píslar-Hugvekjur útaf Pínu og Dauda Drottins vors Jesú Krists / samdar af Síra Vigfúsi sál. Jónssyni Presti ad Stød í Stødvarfirdi Vigfús Jónsson 1711-1761 (Stöð, Stöðvarfirði) höfundur. Kaupmannahøfn, 1851. 352 bls. ; 19 sm. [2. útg.]. Kæapan er laus frá bókinni, að öðru leyti er hún í góðu ásigkomulagi.
Skráningarbók fyrir póstsendingar. Bókin er innbundin og í hana eru færðar póstsendingar frá Silfrastöðum 1904-1959. Með liggja póstsendingaskrár og fylgibréf.
Smárit sem inniheldur reglur um lyf. Á titilsíðu stendur: "Reglur um lyfjagreiðslur sjúkrasamlaga. Útgefandi: Tryggingastofnun ríkisins. Reykjavík 1945:."
Óinnbundið hefti. Reynsla um ormalyf 1933-1935 eftir Níels P. Dungal. Sérprentun úr Búnaðarritinu. Gefið út í Reykjavík af Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg árið 1936. 18,6x12,5 sm
Sálmaval við helgidagalestur í heimahúsum. Á titilsíðu stendur: "Sálmaval við helgidagalestra í heimahúsum. Samið hefur sjera Grímur sál. Grímsson prestur að Barði í Fljótum. Ásamt með nokkrum helgidagabænum, eptir ýsma merkispresta. Kostnaðarmaður J. Grímsson. Akureyri í prentsiðju norður- og austur-amtsins, af H.Helgasyni 1857." Bókin er innbundin í stærðinni 10,4x12,9 sm. Síðurnar orðnar nokkuð slitnar og óhreinar en bókin annars heilleg. Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Skýrsla í stærðinni 21,5 x 14, 6 cm. Sjerprentun úr Lögrjettu. Stefnuskrá Landvarnarmanna eftir Jón Þorláksson. Viðlagasjóður eftir Civis. Ísafold á Suðurnesjum. Bjefkafli að sunnan. Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg. 1907. Ritið er 16 bls að meðtalinni kápu. Nokkuð skemmt af óhreindindum og upplitað.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Kápan er farin að losna frá bókinni og hefti orðin ryðguð en blöðin eru í heillegu ástandi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1941" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1941-1943. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1944" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1944-1945. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1947-Eignakönnun 1948" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1947-1955. Bókin er í mjög heillegu ástandi. Inni í henni eru þrír minnismiðar sem varða búfjárhald og bréfaskipti.
Reikningsbók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattaregistur" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1955-1962. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Smárit í stærðinni 22 x 13, 6 cm. Skýring á minningarbréfinu um þúsund ára byggingu Íslands eptir Benedikt Gröndal. Kaupmannahöfn. Prentað hjá S. Trieer. Ritið er alls 64 bls. Kápu vantað. Ritið er nokkuð skemmt af sliti og óhreinindum.
Bókin er innbundin í stærðinni 9,5x12,9 sm. Á titilsíðu stendur: "Bent Rasmussen: Spedjer kogebog. K.F.U.M. spedjernes instruktionshaandböger. III. De unge forlag. I Hovedkommission: O. Lohse, Köbenhavn. MCMXXIV." Bókin er í góðu ásigkomulagi.
Bókin er innbundin í stærðinni 13,5x20,5 sm. Á titilsíðu stendur: "Spedjerbogen. Patrouilleövelser for drenge. Generallöjjtnant sir R.S.S. Baden-Powells scouting for boys ved C.Lembcke. Andet oplag. Gyldendalske Boghandel Nordisk forlag. MDCCCCXI." Kápa farin að losna frá og kjölur slitin, annars í ágætu ásigkomulagi.
Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm. Stephan G. Stephansson. Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða. Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð. Inniheldur ljóð eftir skáldið.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm. Hún inniheldur kveðskap, m.a. eftirmæli eftir Fljótamenn. Kápan er nokkuð óhrein, en annars er ástand bókarinnar gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16 cm. Bókin inniheldur m.a. fróðleik um Siglufjarðarveg, annál 1881-1882 og frásögn af hval í Hraunakoti, veðurfar sumarið 1882 í Fljótum, upplýsingar um foreldra Péturs, um Myllu-Kobba, frásögn af þreföldu brúðkaupi, tóvinnu, verslun og sauðasölu, skíðamenn og konur, fjölskylduhagi Péturs og æskuminningar, sveitarlýsingu Hannesar Hannessonar og brúagerð yfir Fljótaá og fleira. Með liggur minnismiði frá Hjalta Pálssyni um efnisatriði bókarinnar. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 1. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 2. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,8 cm. Bókin inniheldur einkum ljóð eftir þjóðskáldin og a.m.k. eina vísa er eftir Björn Pétursson frá Sléttu. Með liggur minnisblað um skuldi bænda í Fljótum við Samvinnufélag Fljótamanna. Ástand skjalanna er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,2 cm. Bókin inniheldur einkum ljóð, m.a. "Þið þekkið Fljót með ís og snjóinn..." Kápu vantar á bókina og hún er óhrein.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur æviágrip Magnúsr Bjarnasonar, smásöguna Gamla fólkið eftir Huldu Stefánsdóttur og fleiri frásagnir og æviþætti. Með liggur minnismiði um útvarpsþátt frá 1964. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 32,3 x 20,3 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðarfróðleikur úr Fljótum og Siglufirði, að mestu í annála eða dagbókarformi. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaður fróðleikur um bændur í Holtshreppi 1900 og áratugina á eftir. Ýmis ljóð koma við sögu, einkum eftirmæli. Sagnaþáttur um fund Íslands og Ameríku. Nokkur atriði úr íslandssögunni, einkum á Sturlungaöld. Nokkrir fróðleiksmolar úr spurningaþættinum sýslurnar svara sem var sendur út í útvarpi. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni eru uppskriftir af fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1919-1926, fróðleikur um blaðið Vísi sem félagið gaf út. kafli úr sveitarlýsingu Holtshrepps árið 1900 eftir Hannes Hannesson, annáll 1937-1950 og fleiri frásagnir og ljóð úr Fljótum. M.a. eftir Hannes Hannesson. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,0 cm. Hún inniheldur frásagnir af landnámsmönnum (uppskriftir) m.a. Flóka Vilgerðarsyni, Hrafna-Flóka. Kápuna vantar en ástand bókarinnar er að öðru leyti gott.
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,8 cm. Bókin inniheldur aðallega uppskriftir úr útvarpsþáttum frá árinu 1947 en einnig fróðleik um ættir Péturs og vísitölu árið 1947. Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,9 cm. Hún inniheldur uppskrift af leikþætti. Rithöndin er ekki Péturs, en gæti verið Guðrúnar Jónsdóttur, frænku hans, sem bjó á Hofi í Vesturdal. Ástand bókarinnar er gott.