Stílabókin er í stærðinni 25,3 x 19,5 cm. Í bókina er skrifaður ýmiss fróðleikur, m.a. um presta sem þjónað hafa í Fljótum, ljóð, þjóðsöguna um Sálina hans Jóns míns, sauðfjártölu í Holtshreppi og Haganesvík 1966, úrslit kosninga í kaupstöðum 1962 og uppskrift af viðtali við Hannes Hannesson á Melbreið. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 24,7 x 19,4 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðar rúmlega 300 spurningar og svör, líklega úr útvarpsþætti. ýmsir fróðleiksmolar, líklega uppskrifaðir úr bókum og blöðum. Ýmiss siglfirskur og skagfirskur fróðleikur, m.a. um Sturlungu og úr Fljótum. Nokkrar annálafærslur. Uppskriftir úr útvarpsþáttum 1958-1959. Ljóð, m.a. ljóð Gunnars S. Hafdal um Fljótin. Æviþættir o.fl. Kápa bókarinnar er farin að losna í sundur. Með liggja tvö minnisblöð.
Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaður fróðleikur og ljóð úr útvarpsþáttum. Einnig ýmis önnur ljóð, æviágrip Pálma Sveinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði, hugleiðing um kosningarétt kvenna, annála atriði, fróðleikur um símalagningu og Glaumbæ í Skagafirði, fjártala í Holtshreppi 1932,frásögn um leiksýningu 1953 (ekki ljóst hvar hún var sett upp) og sögn um álagablett í Minni-Brekku. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja tvö minnisblöð
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1961. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1964. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1968. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggja minnisblöð. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 16,2 cm. Bókin inniheldur frásagnir og annálaatriði, m.a. endurminningar Péturs og frásagnir tengdar Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,9 cm. Bókin inniheldur ljóð eftir Bólu-Hjálmar, ásamt fáeinum öðrum ljóðum, uppskrift af leikriti og uppskrift úr útvarpsþætti frá 1949. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 15,8 cm. Bókin inniheldur upplýsingar ætt Halldóru Auðunsdóttur, uppskriftir úr jarðabók ÁM um jarðir í Fljótum. Með liggja tvö minnisblöð sem einnig innihalda upplýsingar úr jarðarbók. Kápu vantar á bókina og síðurnar eru upplitaðar.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm. Bókin inniheldur ýmis ljóð, einkum erfiljóð eftir Fljótamenn. Kápan er laus frá bókinni og síðurnar eru upplitaðar.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hjaltadals. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1951. Bók í A5 stærð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggja nokkur minnisblöð. Kápu vantar á bókina, ásamt fremstu og öftustu blöðum.
Oliver Twist eftir Charles Dickens. Þýtt hefur Páll E. Ólason. Reykjavík: Þorvarður Þorvarðsson gaf út, 1906.Prentsmiðjan Gutenberg. Á saurblaði og titilblaði er bókin merkt Guðjóni Jónssyni á Tunguhálsi.
Innbundin bók í stærðinni 38x23 cm. Í bókinni eru handskrifaðar færslur varðandi tekjur og gjöld umboðsmanns Happdrættis HÍ. Um frumrit er að ræða. Bókin er í heillegu ástandi.
Ljóðmæli / Hjálmar Jónsson frá Bólu ; Jónas Jónsson gaf út Hjálmar Jónsson 1796-1875 (frá Bólu) Reykjavík : Menningarsjóður, 1942 Íslensk úrvalsrit xlvii, 112 bls. : teikningar ; 18 sm.
Reikningsbók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "framtal 1956" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1956-1960. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Reikningsbók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattaregistur" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1955-1962. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Fáein ljóðmæli Þorgeirs Markússonar fyrrum prests að Útskálum frá 1747 til 1753. Þorgeir Markússon 1722-1769 (prestur) höfundur. Sigurður Brynjólfsson Sívertsen 1808-1887 (prestur). Reykjavík : Jón Eyjólfsson, 1906. 64 bls. ; 17 sm. 3. útgáfa.
Kenslubók í esperantó : bygð á Th. Cart: L'Esperanto en dix leçons : ásamt orðasafni með íslenskum þýðingum / eftir Þorstein Þorsteinsson. Reykjavík : Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar, 1909. viii, 104 bls. ; 20 sm.
Um bráðasóttina á Íslandi og nokkur ráð við henni / samið eptir ymsum skýrslum og gefið út af Jóni Sigurðssyni Jón Sigurðsson 1811-1879 (forseti) höfundur. Kaupmannahöfn : Jón Sigurðsson, 1873.
Veilending ved undervisning i samtidig læsning og skrivning. Höfundur: Hedevig Rosing. Kristinania. Udgiven efter offentlig Forantstaltning 1899. Bókin er 60 bls.
Innbundin fundargerðarbók. Fundagerðir nefndar um byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða 06.12.2000-16.10.2001 (nr 1-9). Fundargerðir nr 3 og 4 á lausum, prentuðum blöðum.
Kjallímd stílabók. Fundargerðir húsnæðiskönnunarnefndar Sauðárkróksbæjar frá 17.03. og 05.04. Aðeins tvær skrifaðar síður eru í bókinni. Ástand bókarinnar er gott.
Balslevs biflíusögur handa unglingum / er íslenzkað hefir Ólafur Pálsson ; með viðbæti eptir Helga Einarsson. Balslev, Carl Frederik, 1805-1895. Ólafur Pálsson. Útgefandi Reykjavík : Ísafoldarprentsmiðja, 1896. Bókin er 160 bls. í stærðinni 13,8 x 9,5 sm.
Fimmtíu Passíusálmar. Hallgrímur Pétursson. Útgefandi Reykjavík : Prentað í Prentsmiðju Íslands og á kostnað hennar. Bókin er 208 bls. og 13 x 9,6 sm að stærð.
Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók og bókhald einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Vöruleifar 1934-1942 og reikningar frá Raforkufélagi Hofsóss 1934-1936.
Minnisbókin er innbundin, í stærðinni 16,4 x 9,7 sm. Í hana eru skráð viðurnefni manna í Ísafjarðarsýslum. Á forsíðu er ritað: ""Nokkur viðurnefni og uppnefni í Ísafjarðarsýslu. Uppskrifuð eftir skrá er fyrir lá í Vigur, 1961."
Kristilegur barnalærdómur. Skýring á fræðum Lúters hinum minni eftir Thorvald Klaveness prest í Kristjaníu. Þórhallur Bjarnason íslenzkaði. Reykjavík: Kostnaðarm. Sigfús Eymundsson, 1905. Prentsmiðjan Gutenberg. Þriðja prentun.
Stutt kenslubók í Íslendinga sögu handa byrjendum / eptir Boga Th. Melsteð. Kaupmannahöfn : útgefanda ekki getið, 1914. 154, [2] bls. : myndir, kort ; 20 sm. 3. útg. aukin og endurbætt.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1941" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1941-1943. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1947-Eignakönnun 1948" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1947-1955. Bókin er í mjög heillegu ástandi. Inni í henni eru þrír minnismiðar sem varða búfjárhald og bréfaskipti.