Byrjað að grafa fyrir sundlauginni á Hólum en hún var vígð vorið 1982. F.v. má þekkja Kristján Skarphéðinsson, Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og Gísla Pálsson frá Hofi (með skófluna). Frá hægri má þekkja Jóhann Salberg sýslumann og Ingvar Gýjar Jónsson.
Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.
Árssþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í ágúst 1995. F.v. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Þórður Skúlason sveitastjóri á Hvammstanga í ræðustóli.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Mynd sennilega tekin norðan við Verknámshús Fjölbrautaskólans. Tilefnið óþekkt. (1983-1986). F.v. Óþekktur, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, óþekktur, Pálmi Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Rúnar Bachmann, Björn Sigurbjörnsson, Jón Ásbergsson (á bak við), Bragi Halldórsson og sr. Hjálmar Jónsson.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur í Sauðárkrókskirkju á 90 ára afmæli kirkjunnar í nóvember 1982. Í fremstu röð eru frá hægri. Mínerva Björnsdóttir, Sólborg Björnsdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Þuríður Pétursdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Karlarnir í öftustu röð f.h. Þorbergur Jósefsson, Héðinn Ásgrímsson, Gunnar Haraldsson, Páll Sigurðsson (með gleraugu) og Bragi Haraldsson. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson.
Hagirðingar á 20 ára afmælisfagnaði Rökkurkósins í Miðgarði í mars 1999. F.v Sigurður Hansen, Þórey Helgaóttir, Árni Bjarnason og Hafsteinn Lúðvíksson sem var stjórnandi.
Næturgalarnir úr Húnaþingi vestra syngja á Kaffi Krók í nóvember 1999. F.v. Guðmundur St. Sigurðsson, Karl Sigurgeirsson, Þorbjörn Gíslason og Ólafur Jakopsson ásamt undirleikara Elínborgu Sigurgeirsdóttur.
Átakskvartettinn sem söng á árshátíð Húnvetningafélagsins í Glaumbæ í Reykjavík í janúar 1992. F.v. Skúli Einarsson, Guðmundur St. Sigurðsson, Karl Sigurgeirsson og Bjarni Þór Einarsson.
Hátíð á Hvammstanga á vegum hreppsins í vetrabyrjun 1982 þar sem fagnað var byggingu sundlaugar, verkamannabústaða og lagningu hitaveitu. Mennirnir á myndinni eru Kristján Björnsson, Karl Sigurgeirsson og Helgi Ólafsson.
Áheitaganga Umf. Neista á Hofsósi 17. júní 1990. Þá var gengið með Harald Þór Jóhannesson í Enni í uppbúnu rúmi 22 km leið, þ.e. heimanað frá sér til Hofsóss. Á myndinni er Björn Níelsson sveitarstjóri á Hofsósi (t.h.) að þakka Haraldi fyrir.
Frá formlegri opnun Íbúðalanasjóðs að Ártorgi 1 á Sauðárkróki í janúar 1999. Í fremstu röð á myndinni f.v. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra, Snorri Styrkársson, sr. Gísli Gunnarsson forseti sveitastjórnar, Árni Gunnarsson aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Gunnar Björnsson formaður Íbúðarlánasjóðs, Svanhildur Guðmundsdóttir nýráðin forstöðumaður sjóðsins og Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitastjórnar í sameinaðu sveitarfélagi í Skagafirði haldinn í Gilsstofu í júní 1998. F.v. Sigrún Alda Sighvatsdóttir, Árni Egilsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Páll Kolbeinsson, Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri, Elsa Jónsdóttir ritari, Gísli Gunnarsson forseti sveitastjórnar, Herdís Sæmundaróttir, Elílborg Hilmarsdóttir, Stefán Guðmundsson, Sigurður Friðriksson, Ingibjörg Hafstað og Snorri Styrkársson.
Jón Garðarsson Neðra-Ási talar á fundi í Hótel Varmahlíð um sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði 1997. T.v. við hann er Trausti Pálsson Laufskálum og t.h. Birgir Haraldsson Bakka, Símon Traustason Ketu og Sævar Einarsson Hamri.
Frá undirritun stofnsamnings Byggðasamlags um Hitaveitu Sauðárkróks og Seyluhrepps haustið 1997. F.v. Sigurður Haraldsson oddviti Seyluhrepps, Þorsteinn Ásgrímsson Varmalandi, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjói Skr. og Kristján Jónasson endurskoðandi.
Þingmennirnir Vilhjálmur Egilsson og Ragnar Arnalds með kappræufund á Hótel Mæifelli í mars 1995 fyrir alþingiskostningarnar þá um vorið. Fremst má þekkja f.v. Önnu Halldórsdóttur, Pál Ragnarsson, Vigfús Vigfússon, Ásbjörn Karlsson, Sigurð B. Magnússon (með rauðan trefil), Steinunni Hjartardóttur og Egil Bjarnason (blátt bindi).
Sveitarfélaganefndin sem undirbýr sameiningu sveitarfélaga á fundi með sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi vestra í Safnahúsinu á Sauðárkróki í nóvember 1992. Frá vinstri Guðjón Guðmundsson þingmaður, óþekktur, Ellert Eiríksson bæjarstjóri í Keflavík, Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri form. nefndarinnar, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri Skr. og Björn Sigurbjörnsson Sauðárkróki.
Bændafundur í Víðihlíð í janúar 1998 sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu boðuðu til. F.v. Stefán A. Jónsson Kagaðarhóli, Ólafur B. Óskarsson Víðidalstungu, Hjálmar Jónsson alþingismaður, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og Gísli Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins.
Fundur á Hvammstanga, hugsanlega stofnfundur SSNV en samtökin voru stofnuð á Hvammstanga haustið 1992. Björn Sigurbjörnsson skólastjóri í ræðustóli en hann var fyrsti formaður samtakanna.
Friðrik Sófusson ráðherra (lengst t.h.) á fundi á Kaffi KrókI. Þekkja má f.v. Herdísi Sæmundardóttur, Stefán Guðmundsson, Ingimar jóhannsson, Jón Hjartarson, Ásgrím Sigurbjörnsson, Reynir Barðdal (fjær), Magnús Sigurjónsson, Guðmann Tóbíasson og Ingvar Gýjar Jónsson.
Óþekktur fundur í Fjölbrautaskólanum. Fremstir eru Björn Björnsson t.v. og Snorri Styrkársson þá Kristján og María Hansen, óþekkt, Steinunn Hjartardóttir (fjær), Vigfús Vigfússon og Þorleifur Konráðsson.
Frá samkomu í Miðgarði vorið 1999 til heiðurs Ragnari Arnalds og konu hans Hallveigu Thorlacius, en hann var þá að láta af þingmennsku. Við háborðið eru f.v Óþekktur, Helga Kristjánsdóttir frá Silfrastöðum, Jón Óttar Gunnarsson, Hallveig Thorlacius, Ragnar Arnalds, Margrét Frímannsdóttir form. Alþýðubandalagsins, Elín Þormóðsdóttir. (kona Þórðar) og þórður Skúlason frá Hvammstanga veislustjóri.
Talning í prófkjöri Farmsóknar í Framsóknarhúsinu á Króknum hugsanlega fyrir Alþingiskostningarnar 1995. F.v. Haraldur Hermannsson, Magnús Ólafsson, Guðrún Sighvatsdóttir, Þorsteinn Ásgrímsson og sennilega Guðmann Tóbíasson.
þrír af sjö þátttakendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskostningarnar 1995. F.v. Ágúst Sigurðsson Geitaskarði, Sigfús Jónsson Söndum og Hjálmar Jónsson Sauðárkróki.
Bæjarstjórnarfundur í bæjarstjórn Sauðárkróks. F.v. Anna Kristín Gunnarsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Stefán Logi Haraldsson, Steinunn Hjartardóttir, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri (í ræðustóli), Elsa Jónsdóttir ritari, Björn Sigurbjörnsson og Björn Björnsson.
Frá fyrsta þingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem haldið var á Siglufirði haustið 1993. F.v. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Ragnar Arnalds alþingismaður (í ræðustóli), Þorsteinn Ásgrímsson form. Héraðsnefndar Skag. og óþekktur.
Fundur með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987 í Fjólbrautaskólanum á Sauðárkróki. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Birgir Dýrfjörð frá Alþýðuflokki er í ræðustóli og Árni Steinar Jóhannsson Þjóðarflokki lengst t.v. Þriðji óþekktur.
Fundur í Fjölrautaskólanum á Sauðárkróki með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Lengst t.v. Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokk, Steinunn Erla Friðþjófsdóttir fyrir Kvennalista í ræðustóli og Birgir Dýrfjörð fyrir Alþýuflokk lengst t.h. Óþektur t.v. við ræðupúltið.
Frá fundi með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987 í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokkinn er í ræðustóli og t.h. Birgir Dýrfjörð fyrir Alþýðuflokkinn.
Fundur í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Á myndinni eru f.v. Ragnar Arnalds fyrir Alþýðubandalagið, Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokkinn og Páll Pétursson fyrir Framsóknarflokkinn.
Fundur með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987 hjá Nemendafélagi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Andri Kárason formaður Nemendafélagsins í ræðustóli. Birgir Dýrfjörð Alþýðuflokki t.h. og t.v. er Árni Steinar Jóhannsson Þjóðarflokki.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðvesturkjördæmi. Óvíst um ár. F.v. Eyjólfur R. Eyjólfsson (í ræðustóli), Sigurður Sigfússon, óþekkt og Ragnar Arnalds.
Ragnar Arnalds veitir viðtöku tveimur málverkum eftir Margréti Björnsdóttur (Sossu) í fimmtugs afmæli sínu, sem haldið var í Vertshúsinu á Hvammstanga í september 1988.
Tilg. Gránufélagið hefur starfsemi sína í Gránu í desember 1987. F.v. Jón Gauti Jónsson, Katrín Finnbogadóttir, Þórhallur Ásmundsson, Bjarni Jóhannsson, óþekktur, Björn Sigurbjörnsson og Vigfús Vigfússon.
Vinstra megin í salnum eru f.v. Helga Hannesdóttir, Sigmundur Pálsson, Oddur Eiríksson, Sigurður Ágústsson og Guðjón Ingimundarson. Til hægri eru f.v. Óþekkt, Sigríður Jensdóttir og Ossý. Þetta er sennilega í Safnaðarheimilinu en tilefnið óþekkt.
Ólafur Ragnar Grímsson (í ræðustóli) með almennan fund á Villa Nova haustið 1987, þá nýkjörinn formaður Alþýðubandalagsins. Honum á hægri hönd Karl Bjarnason og Ragnar Arnalds.
Heimamenn á Sauðárkróki ásamt þingmönnum á fundi ca 1981-1983. Til vinstri við borðið f.v. þingmennirnir Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Eyjólfur Konráð Jónsson þá Friðrik J. Friðriksson læknir, Ragnar Arnalds þingmaður og Árni Ragnarsson arkitekt. Hægra megin við borðið má þekkja Ástvald Guðmundsson, Þorbjörn Árnason og Magnús Sigurjónsson fjærst.
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. Við borðið fjærst er Sveinn Sölvason og við miðborðið eru fjær Viggó Sigurjónsson og Sigríður Sigtryggsdóttir frá Skefilstöðum, þá Eiríkur Björnsson frá Gili og Guðvin Jónsson Skr. Við borðið næst t.h eru f.v. Bergur Magnússon frá Unastöðum, Guðrún B. Sigurðardóttir og sennilega Hólmfríður Sveinsdóttir. Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar á Króknum taka í spil í Safnaðarheimilinu. Við borðið t.v. fjær eru Jósafat Sigfússon og Hólmfríður Jónasdóttir. Standandi við dyrnar eru Eiríkur Björnsson frá Gili t.v. og Guðmundur Andrésson dýralæknir. Þá eru systkinin Kristín og Sveinn Sölvabörn við borðið t.h. Aðrir óþekktir.
Tilg. Fótboltastrákar úr Umf. Neista á Hofsósi sem fóru í æfinga- og keppnisferð til Færeyja 1990 og eða1991 en þeir fóru bæði árin til Færeyja. Efri röð f.v.: Páll Brynjarsson, Oddur Jónsson, Hjalti Þórðarson, Guðmundur Jónsson, Haukur Þórðarson, óþekktur, Þórhallur Ásmundsson og Ólafur Gunnar Halldórsson. Neðri röð f.v.: Halldór, Kristján Jónsson, Jóhann Sigmarsson, Magnús Jóhannesson, óþekktur, Stefán Steinþórsson og Sigmundur Jóhannesson.
Frá þreskingu á korni í Hólminum haustið 1996 þar sem nokkrir bændur í Skagafirði stunduðu sameiginlega kornrækt. Gísli Björn Gíslason Vöglum er í þreskivélinni, Símon Traustason Ketu á pallinum og Sigurður Sigfússon Vík með pokann t.h.
Að loknum kornskurði í Hólminum haustið 1996 þar sem nokkrir bændur í Skagafirði stunduðu kornrækt saman. F.v. Árni Halldórsson Útvík, Sigurður Sigfússon Vík, Gísli Björn Gíslason Vöglum, Eiríkur Loftsson héraðsráðunautur og Símon Traustason Ketu.
F.v. Þorsteinn Pálsson ráðherra, Vilhjálmur Egilsson þingmaður og Jón F Hjartason skólameistari á fundi á Kaffi Krók. Hugsanlega fundur um atvinnumál haustið 1996.
F.v. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra, Magnús Sigurjónsson og Jón F Hjartarson skólameistari á Kaffi Krók. Hugsanlaga fundur um atvinnumál haustið 1996.
Óþekktur fundur á Kaffi Krók. F.v Páll Kolbeinsson, Bjarni Brynjólfsson, Lovísa Símonardóttir, Tryggvi Jónsson (fjær), Hermann Agnarsson, Guðni Kristjánsson, Jón Friðriksson og Magnús Sigurjónsson.
Óþekktur fundur. F.v. Árni Ragnarsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Björn Sigurbjörnsson skólastjóri, Björn Björnsson skólastjóri, Bjarni Brynjólfsson og Hilmir Jóhannesson.
Tilg. Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga haldinn í Selinu ár ? Við borðið næst f.v. Guðmundur Gunnarsson, Gísli Felixson, Erla Einarsdóttir, Helena Magnúsdóttir og Inga Valdís Tómasdóttir.
Samkoma eldri borgara í Bifröst. Við borðið t.v. eru Valberg Hannesson og Áshildur Öfjörð. Næsta borð f.v. óþekkt kona við vegginn, Steingrímur Friðriksson, Kristján Sölvason, María Ragnarsdóttir Aadnegard, Sigurlaug Antonsdóttir og Kristín Sölvadóttir. Fjærst við vegginn er svo Herdís Sigurjónsdóttir.
Þrír Skiptinemar frá Bandaríkjunum á vegum AFS skiptinemasamtakanna, sem dvalið höfðu í Skagafirði ásamt AFS deildinni á Sauðárkróki í ágúst 1987. F.v. Þorkell Þorsteinsson kennari, þá skiptinemarnir þrír, Rannveig Jónasdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir með Valdísi Dröfn.
Óþekktur fundur í Fjölbrautaskólanum. Fremstur í fremstu röð er Snorri Styrkársson (með skegg), fremstur í annarri röð er Vigfús Vigfússon (í grænum jakka). Innst á sama bekk og Vigfús eru Kristján Hansen og María Hansen. Þorleifur Konráðsson í rauðri úlpu aftast og við hlið hans er Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir
Línubeitning á Hofsósi í nóvember 1990. Frá vinstri Valgarð Valgarðsson, Sveinn Einarsson, Jón Jóhann Jónsson, Jón Helgi Pálsson og Jónas Jónasson í Árveri lengst t.h. Svo sér í kollinn á Braga Vilhjálmssyni neðst á miðri mynd.
Rúnar Gíslason rútubílstjóri bauð eldri borgurum í Skagafirði til skemmtiferðar sumarið 1995 þar sem farið var til Hveravalla. Um 110 manns voru í ferðinni og fararstjóri var Sigmundur Pálsson. Myndin tekin framan við Miðgarð. Bílstjórarnir í ferðinni eru fremstir. F.v Ingimar Ástvaldsson, Sigurður Björnsson, Hreinn Þorvaldsson, Rúnar Gíslason og (Agnar Búi Agnarsson).
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð á Sauðárkróki í júií 1997. Á myndini eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.