Bærinn í Húsey í Hólmi. Aftan á ljósmynd stendur: Árni (Gottskálksson?), Fríða (Bjarnfríður Þorsteinsdóttir?), Lauga (Guðlaug Egilsdóttir?), Árný (Jónsdóttir?) Helga. Filman er nokkuð skemmd, annað hvort af ljósi eða að tekið hafi verið aftur ofan í filmuna.
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Bragi Melax og ég fyrir framan styttuna af Jón Sig. í þinghúsgarðinum, hún er eins og sú á Austurvelli.
Hópur fólks gæðir sér á nesti við torfbæ. Í bakgrunni er fallega hlaðinn veggur. Í skýringum við myndina segir "mjólkurdrykkja og skyrát." Myndin sennilega tekin að Saurbæ í Eyjafirði í september 1927.
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Við skruppum til Wpeg um þessa helgi og hittum Stebba þar, þá tók Kári þessa mynd af okkur."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna fyrir framan eina stærstu járnvöruverslun borgarinnar, heldur súr á svipinn. Á rúðunum má sjá rendur, um 10 cm frá kantinum, hringinn í kring. Þetta er til varnar þjófum, Þessi rönd er eins og úr brönsi og er rafstraumur á henni, og ef kemur sprunga í hana hringir þjófabjalla. þetta er mjög nýtt og er á mörgum byggingum í Wpeg. Ekki vorum við nú að hugsa nánar um það."
Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.
Myndirnar frá 609 til 616 eru að öllum líkindum teknar á Vífilstöðum, en Kristján C dvaldi þar til lækninga á berklum frá 1920 til 1926. Óvíst er hvort þessar myndir eru teknar þá eða síðar. Fólkið á myndunum er óþekkt.
Anna Kristín Jónsdóttir, áður húsfreyja á Völlum með dótturdóttur sína Kristínu Bjarnadóttur, síðar húsfreyju í Ásgeirsbrekku. Myndin tekin á Uppsölum, líklega 1928.
Brúntóna pappírskópía í stærðinni 5,9 x 8,8 sm. Á myndinni er Jónas Stefánsson smiður. Myndin er límd á spjald merkt Jóni J. Dahlmann ljósmyndara á Akureyri.
Tvær óþekktar konur. Framan á myndina er skrifað: "ingibjörg og mamma." Aftan á myndina er skrifað: "Ingibjörg frænka mín og mamma. Tekið í Ágúst 1952.
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar: "Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970." Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.