Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.
Gögnin innihalda m.a Fundargerðir, Ársþingskýrslur og Mótaskrá U.M.S.S sem er mjög umfangsmikil, haldin voru mörg mót s.s. Tugþrautarmót, Unglingamót, Meistaramót, Bikarmót og Norðulandamót svo fátt eitt sé talið. En í UMSS gögnum eru líka heimidir frá aðildarfélögum s.s Tindastól knattspyrn og sund. Gögnin eru pappísrsgögn og bæklingar í misjöfnu ástandi einhver rifin og blettótt.
Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af gluggum eftir Hjalta Guðmundsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks, 1955. Líklega um prófverkefni að ræða.
Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af einstökum byggingarhlutum eftir Ásmund Sveinsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks. Líklega um prófverkefni að ræða.
Sumarið 1908 reisti Kaupfélag Skagfirðinga sláturhús úr steinsteypu. Ingimar Sigurðsson kennari gerði teikninguna en Rögvaldur Ólafsson húsameistari í Reykjavík lagfærði hana. Árið 1908 var vesturhluti hússins byggður.
Ýmis gögn varðandi skipulag íþróttasvæðisins á Sauðárkróki, samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið, athugasemdir við deiliskipulag og hans eigin hugleiðingar um framkvæmd málsins.
Skipulagsuppdráttur fyrir Sauðárkrókur eftir Guðmund Hannesson frá 1938 og uppdráttur af skipulagi Sauðárkróks eftir Sigurð Sigurðsson (síðar búnaðarmálastjóra) frá 1917. Ljósrit af uppdráttunum sem notaðar voru á sýningarspjöldum, mögulega vegna kynningar á aðalskipulagstillögu frá 1970.
Minningarbók Steinunnar Trine Hansen Kristjáns en hún var föðursystir Erlendar Hansen. Ljósritið virðist koma frá Björgvini Brynleifssyni, Skagaströnd, syni Steinunnar.
Minning um: Jón Benediktsson frá Grenjaðarstað. Brot af grein 1936. Jón á Flugumýri. Ræða við útför 1936. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sauðárkróki. Ræða við útför. 1936. Jósefina Hansen ,Sauðárkróki. Ræða við útför. 1937. Magnús Guðmundsson, alþingismann og fyrrverandi ráðherra. Tíminn, 1937. Guðfinna Jensdóttir fræa Miklabæ. Ræða við útför. 1938. sr. Árnór Árnórsson frá Hvammi 1938. ( óbirtur og ófluttur texti.) Gísli Hannesson, Djúpadal. útfararræða eftir sr. Lárus Arnórsson. 1939. Prentuð. Jón Árnson, Valadal. 1939. ( óbirtur og óflutt ). Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Ríp. Ræða við útför.1940.
Bréf til og frá Menntamálaráðuneytinu og 2 auglýsingar um laun stundakennara. 1 skjal með reglum um þáttöku ríkissjóðs í kostnaði við framkvæmd sundskyldunar 1971 og leiðbeiningar sem varða hana. 2 samningar Menntamálaráðuneytisins og bæjarstjórnar Sauðárkróks um Framhaldsskóla á Sauðárkróki. 1 greinargerð um gerð námsskráar. Erindisbréf fyrir skólanefndir grunnskóla.
Lög úr Danslagakeppni,1. Nafnlaust (Skagafjörður fagur er), 2. Haustkvöld (höfundur Máni), 3. Hvað er ást (höfundur linnana) 4. Löngumýrarlagið (höf: Petró) nokkur leikin lög íslensk í syrpu. 5. Væri ég sjómaður (höf. Snadda), 6. Vangadans (höf. Fjöllyndan) 7. Abba (höf. Muggur) 8. Dísadóra (höf. Randafluga).
Myndir úr menningarlífi Sauðárkróks, 8 myndir úr leikritinu Gift og ógift sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp árið 1946. Ein mynd af Kirkjukór Sauðárkróks
Bréf til Jóns Nikodeumsson hitaveitustjóra. Reikningur fyrir jarðborun til Hitaveitu Sauðárkróks, yfirlit yfir rörasendingu, skýrsla, reglugerð um Hitaveitu Sauðárkróks.
Gjafabréf Eyþórs Stefánssonar til Tónlistarskóla Sauðárkróks. Eyþór gefur 1.000.000 króna til sjóðsstofnunar sem átti að "þjóna því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám í hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskyldum prófum við skólann."
Líklega frá áramótunum 1979-1980. Hefð var fyrir ólátum á Sauðárkróki á þessum tíma þar sem menn skipuðust í lið og slógust. Þarna átti að stoppa þessi læti í eitt skipti fyrir öll með sameiginlegu átaki.
Teikningar af félagsheimili/leikhúsi og hóteli við Faxatorg, teiknað af Jóni Haraldssyni, arkitekt, 1979. Varð aldrei að veruleika. Afstöðumynd sem sýnir einnig hótel sunnan við félagsheimilið. Merkt "Reynir" en erfitt að lesa í restina.