Fonds E00019 - Ungmennafélag Höfðstrendinga

Gjörðabók Ungmennafélaga Höfðstrendinga Gjörðabók Ungmennafélaga Höfðstrendinga Gjörðabók  U.M.F. Höfðstrendinga Gjörðabók U.M.F.H Hofsós Fundargerðarbók U.M.F.H

Identity area

Reference code

IS HSk E00019

Title

Ungmennafélag Höfðstrendinga

Date(s)

  • 1908 - 1987 (Creation)

Level of description

Fonds

Extent and medium

6 Öskjur

Context area

Name of creator

(1917 - 1987)

Biographical history

Þann 25. mars.1917 komu nokkur ungmenni úr Hofsós og grendinni saman í þinghúsi hreppsins í þeim tilgangi að stofna ungmennafélag. Á þessum fyrsta fundi var samþykkt að félagið héti Ungmennafélag Höfðstrendinga. U.M.F.H. Og svo segir m.a. í lögum nýs félags, að félagsmenn geta þeir orðið sem ekki neyta áfengra drykkja og þeir sem eru innan 20 ára ( breyttist svo í 16 ára ). Séu ekki tóbaksneytendur en aldurstakmark félagsmanna er 12 - 40 ára og byggja þeir stefnu sína á kristilegum grundvelli. Allir sem skrifa undir skuldbindingu og lög félagsins skulu þúast. Fundir skulu byrja og enda með því að syngja eða lesa eitthvað ættjarðarljóð. Í bréfi sem Björn í Bæ ritar og er í þessum gögnum segir að fyrsta verkefni var að stofna Unglingaskóla og að það var mikill áhugi hjá fólki að láta gott af sér leiða og margir hafi fengið sínar fyrstu æfingu að setja hugsanir sínar í mælt mál. Starfrækt var kartöflurækt, opnuð var sundlaug milli Hugljótstaða og Hólakots, árið 1927 var strengt heit að koma upp samkomuhúsi og 29 .des.1928 var húsið fullbyggt og vígt með viðhöfn og skýrt Skjaldborg. Það var eins og öll skemmtanahöld lifnuðu við með tilkomu Skjaldborgar, leikfélagið var með margar sýningar og starfandi karlakórinn Þröstur, flestir ungmennafélagar, þá þótti engin skemmtun boðleg nema samsöngur væri. Félagar ungmennasambanda skiptust á að mæta á fundi hjá hvorum öðrum og flutt voru ýmis erindi sem voru svo tekin til umræðu, þetta færði unga fólkið saman í starfi og góðum anda.
Stjórnarfundur sem haldin var 11.maí.1982 í U.M.F.Höfðstrending samþykkti ( áður samþ á aðalfundi 24. febrúar.1982 ) að UMSS hafi forgöngu um viðræður milli U.M.F Geisla og U.M.F Höfðstrendings. Í Byggðasögu Skagafjarðar X. bindi er þess getið að með sameiningu Ungmennafélags Geisla í Óslandshlíð og Íþróttafélagsins Neista 22. mars.1990 hafi orðið til Ungmennafélag Neisti og Ungmennafélag Höfðstrendingur hafi ekki verið með í þeirri sameiningu og starfaði ekkert eftir þetta.

Archival history

Stærsti hluti gagnanna var afhentur af Bryndísi Óladóttur, Hofsósi þann 6.9.2007.

Immediate source of acquisition or transfer

Content and structure area

Scope and content

Ýmis gögn Ungmennafélagsins Höfðstrendinga eru í þessu safni s.s bókhald, bréfasafn, fundagerðabækur, sveitablaðið Félaginn 2 árg, ( D-A-c ). Harðspjaldabók um leikritið Henrik og Pernille eftir Ludvig Holberg, Baron of Holberg (3 December 1684 – 28 January 1754) skrifað 1724, en þýðandi Lárus Sigurbjörnsson ( D-A-a ) ásamt fleiri áhugaverðum gögnum. Gögnin eru flokkuð í hverju skipulagi eftir ártali, elstu gögn neðst en þau yngstu efst.

Appraisal, destruction and scheduling

Accruals

System of arrangement

Conditions of access and use area

Conditions governing access

Conditions governing reproduction

Language of material

  • Icelandic

Script of material

Language and script notes

Physical characteristics and technical requirements

Finding aids

Allied materials area

Existence and location of originals

Existence and location of copies

Hreinsun á sér stað á fjölrituðum gögnum

Related units of description

Related descriptions

Notes area

Note

Úr gögnum Ungmennafélags Höfðstrendinga komu fram persónuleg bókhaldsgögn Ólafs Magnúsar Þorsteinssonar, verslunarmanns á Hofsósi02.02.1927 - 29.09.2003. Þessi gögn eru sett með E00019 og eru geymd í D- A- e. Gögnin eru heilleg og læsileg. (1952 - 1972 )

Note

Úr gögnum Ungmennafélags Höfðstrendinga kom fram Fundarbók fyrir Málfundafélag Hofshrepps 1908 - 1912
Sú bók sett í E00020. Málfundafélag Hofshrepps.

Alternative identifier(s)

Access points

Subject access points

Name access points

Genre access points

Description control area

Description identifier

IS -HSk

Institution identifier

IS-HSk

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Partial

Dates of creation revision deletion

SUP yfirfærði úr Einkaskjalaskrá í atom - 26.5.2023.
Uppfært, LVJ 20.09.2023

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Sources

Accession area

Related subjects

Related people and organizations

Related genres