Flutningsvottorðin eru útfyllt eyðublöð, prentuð á pappírsarkir í A3 stærð, nema 3 þeirra sem eru vélrituð á pappírsarkir í A4 stærð. Þau varða flutninga einstaklinga milli sjúkrasamlaga innanlands. Auk þess eitt í folio stærð sem varðar flutning erlendis frá. Alls 23 vottorð.
-Hefti ljósmóður, þar sem hún skrásetur þær fæðingar sem hún er viðstödd. -Blað með yfirliti yfir börn fædd í Mælifellsprestakalli á tilteknu tímabili hins vegar.
Forprentaðar yfirlitsskýrslur, með handskrifuðum og tölvuprentuðum upplýsingum um hrútadóma, fallþunga kjöts og skrá yfir veturgamlar ær. Skýrslurnar eru flestar skráðar á Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Róðhóli og Jón Björn Sigurðsson Bræðraá. Sumar skýrslur voru í tví- og þríriti, afritin hreinsuð úr safninu. Skýrslurnar eru með tölvuprentuðum og handskrifuðum upplýsingum. Öll gögnin eru í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.
119 blöð að mestu í A4 broti. Vélritað og handskrifað. Einnig umslög, stílabók og viðskiptabók við Séreignasjóð Sláturfélags Skagfirðinga. Einnig fleiri gögn, m.a. teikning af húsi. Annars að mestu leyti bókhaldstengt.
Ýmis gögn er varða sögu Feykis, fundarboð á stofnfund hlutafélags um blaðaútgáfu, grein um 10 ára afmæli Feykis, listi yfir stofnendur og ritstjóra og ræða Berglindar Þorsteinsdóttur er blaðið varð 35 ára árið 2016.
Ýmis gögn tengt Ungmennafélaginu Tindastóli sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Gjörðabók, afrit af fréttum, fundargerð knattleikjaráðs Skagafjarðar, drög að reglugerð vegna ungmennafélags bikars og að lokum auglýsingar frá skíða- og sunddeildum Tindastóls.
Ýmis gögn sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar, tengd starfsemi hans innan Kaupfélags Skagfirðinga. Minnisbók, reglugerð fyrir Menningarsjóð K.S. og bréf frá 8. janúar 1961 sem er óvíst hvort sé til Guðjóns eða frá honum. Efni bréfsins er bókhald Kaupfélagsins á þessum tíma.
Ýmis gögn sem voru í skjalasafninu en tengjast ekki Lestrarfélaginu. Flest varða þau Ketukirkju en eitt tengist persónulega Lárusi Björnssyni í Efra-Nesi sem var bókavörður í safninu.
Prentuð gögn frá safni inniheldur m.a. Sýningarskrá fyrir heimilisiðnaðardeild fyrir Landbúnaðarsýningar 1947 og tímaritsgrein um Fundagerð 1916 frá Ársfundi Sambandsfjélags norðlenskra kvenna settur á Sauðarkrók. Einnig verðlistar, leiðbeiningar um byggingu safnfors , verðskrá fyrir búnaðarvélar og verkfæri og óútfyllt eyðublöð. Gögnin eru blettótt og eitthvað rifið, eitt póstkort frá1916 og tvö Rjefspjald Ísland frá 1899 og 1910 liggja hér.