Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.
Hesteyri, höfnin á Eyrinni í byggingu. Steypuklumpar bíða í röðum eftir því að vera sökkt við hafnargarðinn til að verja hann fyrir haföldunni. Nýja höfnin var gríðarmikið mannvirki og boðaði byltingu í atvinnuháttum á Sauðárkróki. Myndin tekin á árunum 1938-1939.
Innbundin og handskrifuð bók með félagatali knattspyrnudeildar Tindastóls fyrir starfsárin 1963 og 1967. Einnig eru fundargerðir aðalfundar og stjórnar knattspyrnudeildarinar frá 5.1.1967 til 24.1.1970. Bókin er vel varðveitt og í góðu ásigkomulagi.
Verðlaunahafar fyrir veggspjald, sem unnið var í umferðarátaki sem umferðanefnd Sauðárkróks, lögreglan, tryggingarfélögin og grunnskólinn á Sauðárkróki stóðu fyrir 1997. Aftari röð frá vinstri, Arnar Freyr Frostason (1988-), Snævar Örn Jónsson (1988-), Stefanía Inga Sigurðardóttir (1988-), Jóhanna Ey Harðardóttir (1988-). Fremri röð frá vinstri Skapti Ragnar Skaptason (1988-), Katrín Sveina Björnsdóttir (1988-).
Líkfylgd við útför Ingólfs Nikódemussonar sem lést 31. júlí 1996 á Sjúkrahúsi Skagfirðinga. Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit báru kistuna upp Kirkjustíginn í kirkjugarðinn.
Unnið að því að setja saman rör sem undirgöng undir Sæmundarhlíð frá Bóknámshúsi að heimavist Fjölbrautaskólans árið 1996, en björgunarsveitin Skagfirðingasveit sá um samsetningu röranna.
Starfsstúlkur eldhúss FNV að taka upp rabbarbara við Ketu, Skógargötu 26, Sauðárkróki í júní 1996. Frá vinstri: Fríður Ásdís Kristjánsdóttir (1931-), Erna Ísfold Jónsdóttir (1936-), Sigríður Ingimarsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Margrét Halldórsdóttir og Sigurrós Berg Sigurðardóttir (1943-).
Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-) formaður skólanefndar tekur fyrstu skólfustungu að byggingu B-álmu og Kubbsins við Árskóla í ágúst 1999. Aðstoðarmaður á gröfu óþekktur.
Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-) formaður skólanefndar tekur fyrsu skólfustungu að byggingu B-álmu og Kubbsins við Árskóla í ágúst 1999. Aðstoðarmaður á gröfu óþekktur.
Fyrsta skóflustunga tekin að byggingu B-álmu Árskóla í ágúst 1999. F.v. Herdís Á Sæmundardóttir formaður skólanefndar, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Helgi Sigurðsson, Þórarinn Sólmundarson (á bak við), Stefán Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Steinunn Hjartardóttir, Óskar G. Björnsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir (framan við), Selma Barðdal og Hallfríður Sverrisdóttir (sést að hluta). Trésmiðjan Borg sér um verkið.
Unnið að lagfæringu og endurbótum á hafnargarðinum á Sauðárkróki vorið 1995 en brim liðins vetrar höfðu skemmt garðinn. Maðurinn sem krýpur gæti verið Ólafur Guðmundsson.
Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.
Tilg. Fundur á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga. Fjær f.v. Friðrik J. Friðriksson (1923-2011) , læknir á Sauðárkróki, Ólafur Ólafsson (1928-) landlæknir og Ingibjörg Pálmadóttir (1949-) heilbrigðisráðherra.
Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) starfsstúlka Kjötvinnslu KS handleikur fallegan dilkaskrokk haustið 1994, en veruleg söluaukning hafði orðið hjá Kjötvinnslunni.
Fyrsta lambið í búsmala sauðkrækinga vorið 1993 fæddist líklega hjá Lárusi Sveinssyni rétt fyrir páska. Það kunni barnabarn hans , Sunna Björk Atladóttir, vel að meta og hampar hún hér lambinu og félagi hennar Eyþór Fannar Sveinsson fylgist með af aðdáun. Lárus Sveinsson (1913-1993) Sunna Björk Atladóttir (1989-) Eyþór Fannar Sveinsson (1987-).
Mynd frá vöru- og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. Það var nóg að gera í básnum hjá afurðasölu KS við að grilla og bjóða upp á kjötmeti og ost. Páll Friðriksson (1967-) t.h. og Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) grillmeistarar. Til vinstri óþekktur.
Loðdýrabændur skoða loðdýrabúið hjá Reyni Barðdal á Gránumóum síðsumars 1996. Reynir Barðdal (1949-) annar frá vinstri að útskýra eitthvað fyrri gestunum. Til vinstri á myndinni er Arvid Kro framkvæmdastjóri Sambands Loðdýrabænda. Lengst til hægri er Kristján Jónsson (1959-) Óslandi. Aðrir óþekktir.
"Ungur nemur gamall temur," er orðtak sem starfsfólk leikskólans Furukots hafði í heiðri. Því var farið með börnin í kynnisferð í Sauðárkrókskirkju. Myndin var tekin meðan hópurinn beið eftir sóknarprestinum við kirkjudyrnar í desember 1988. F.v. Hafdís Guðlaug Skúladóttir (1967-) , Eiríkur Hilmisson (1963-) , Arna Kristjánsdóttir (1968-) , Lýdía Ósk Jónasardóttir (1967-) Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir (1960-). og 2 óþekktar.
Frá Fiskiðjunni á Sauðárkróki í mars 1995. Til vinstri Snjólaug Kristinsdóttir (nær), Margrét Skúladóttir og til hægri Aldís Guðrún Axalsdóttir (nær) og Sólborg Björnsdóttir.