Bréfið er handskrifað á sjö pappírsarkir í A4 stærð. Efni bréfsins er hugleiðingar um menntun, fróðleikur um útbúnað á reiðtygjum sem nefndist starkóngur og ættfræði. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni safnsins. Það varðar vöðtöku á gögnum sem skólinn afhenti safninu í júní árið 1993. Með liggur listi yfir gögn afhent árið 1988 frá héraðsskjalaverði og listi yfir gögn afhent árið 1999 frá skólastjóra.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls 4 síður. Það varðar muni sem vantar í Byggðasafnið og hugmyndir um að láta smíða þá. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 12,7x8,8 sm. Um er að ræða pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Það er gatað með einu gati og stílað á Sigurð.
Bréfið er handskrifað á pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Á það er límd ljósmynd og inn á myndina er skrifað "Smalastöðvar í Svínadalsfjalli frá barns- og unglingsárum. J.Kr."
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar afkomendur Önnu Jóhannesdóttur og Stefáns Benediktssonar frá Berghyl. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af heimferð bréfritara úr sveitadvöl í Minni-Brekku og skólagöngu hans. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á þrjár línustrikaðar pappírsarkir í A4 broti. Með fylgir umslag og pappírsörk í A5 stærð sem er listi yfir verðlag á Sauðárkróki árið 1924.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.