Auglýsingarnar eru prentaðar á dagblaðapappír, tvær pappírsarkir í A4 stærð og eina í A3 stærð. Með liggur umslag merkt bókasafninu, ásamt tilboði sem vélritað er á pappírsörk í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.
Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum. Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar reikning sýslubókasafns. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Béfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar ósk Ísleifs Gíslasonar um kauphækkun. Með liggur uppkast að samþykkt vegna greiðslu til Jóns Björnssonar. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand skjalanna gott.
Béfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar erindi frá UMF Tindastól um stækkun á Bifröst. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Rímnabókin Æfintýrið Jóhönnuraunir. Á titilsíðu stendur: "Æfintýrið Jóhönnuraunir. Snúð af þýsku undir íslenzk fögur rímnalög af Snorra Bjarnasyni presti til Staðar í Aðalvík 1741 og síðan að Húsafelli 1757-1803. Útgefandi: Þorlákur Reykdal. Þriðja útgáfa. Reykjavík 1904. Prentsmiðja Frækorna." Bókin er innbundin í stærðinni 8,3x15,7 cm. Kápan er aðeins farin að losna en bókin heilleg að öðru leyti.