Gunnar Ólafsson í Keflavík- Sigurlaug Magnúsdóttir kona hans og börn þeirra. Efsta röð frá vinstri: Ólafur Valgarð Gunnarsson- Magnús Gunnarsson og Jónas Jón Gunnarsson. Næst efsta röð frá vinstri: Margrét Gunnarsdóttir- Sigurbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. Næst fremsta röð frá vinstri: Sigríður Gunnarsdóttir- Jóhanna Gunnarsdóttir- Árni Gunnarsson og Anna Sigurbjörg Gunnarsdóttir. Fremst frá vinstri: Dýrfinna Gunnarsdóttir- Pétur Gunnarsson og Hallfríður Gunnarsdóttir.
Sitjandi frá vinstri: Jón Björnsson Ljótsstöðum og Gísli Guðmundsson vert á Sauðárkróki. Standandi frá vinstri: Magnús Gunnarssoon í Nesi- Sæmundur Sigfússon vert á Sauðárkróki og Friðrik Jónsson skósmiður á Sauðárkróki.
Kortið er til þeirra beggja, Magnúsar og Sigurbjargar, frá Guðrúnu Sveinsdóttur (1922-1981), Arnóri Sigurðssyni (1919-1998) og börnum þeirra, Sveini Tuma (1949-2002) og Stefaníu (1945-).
Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar og Magnúsar bróður hennar á þessu tímabili. Einnig eru sendibréf til Walters sem var í sveit hjá þeim Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka jólakort og myndir myndir og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna. Í series bókhaldi E, lá efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig. Í series G-4 er handskrifað bréf með stimpilmerki. Bréfið sýnist vera skírnavottorð um skírn Jón fæddur 9.janúar, skírður 2.des.ár 1916. Foreldrar, Björn Pálmason og Sigurbjörg Jónsdóttir.Ytri - Húsabakka. Dagsett, Glaumbæ 3.maí 1930.
Sendibréf og umslög er bárust til Magnúsar, bróður Sigurbjargar, frá hinum ýmsu samferðamönnum Magnúsar frá ýmsum stöðum s.s Reykjavík, Siglufirði og Viborg. Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi.