Blaðið er fjölritað á pappírsörk í A4 broti, alls fjórar síður. Það varðar stefnumál Sauðárkróksdeildar Kommúnistafélags Íslands fyrir bæjarstjórnarkosningar 1934. Ástand skjalsins er gott.
4 vélrituð blöð í folio stærð. Yfirskriftin er Nokkur atriði sem frambjóðendur og stuðningsmenn A listans, lista Alþýðuflokksins, á Sauðárkróki telja að þurfi að koma í framkvæmd og að hægt sé að framkvæma á næsta kjörtímabili.
Handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, um er að ræða lítið en blandað safn sem í er ársskýrslur Framsóknarfélags Lýtingsstaðarhrepps, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti. Ryðguð hefti voru hreinsuð úr safninu.
Stefnuyfirlýsingin er fjölrituð á fjórar pappírsarkir í folio stærð. Hún varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1958. Ástand skjalsins er gott.
Stjórnarskráin er hefti í stærðinni 18,5 x 12,3 cm. Inniheldur Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands og lög umkosningar til Alþingis. Ástand skjalsins er gott.
Úrskurðurinn er fjölritaður á tvær pappírsarkir í folio stærð. Hann varðar reikninga bæjarins. Með liggur umsögn bæjarstjóra um úrskurðinn, einnig tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalsins er gott.
1x skýrsla miðstjórnar Framsóknarflokksins , mars 1934. 1x tillögur til breytinga á lögum Framsóknarflokksins samþ. á aðalfundi miðstjórnarinnar - 10.feb., 1945. 1x bréf merkt "trúnaðarmál" - 20. febrúar 1945. 1x lög Framsóknarflokksins- 15. marz 1941. 1 x Bréf frá miðstjórn Framsóknarflokksins. - 20. apríl 1945.