Tilkynning til bóksala frá Jóhanni Eyjúlfssyni þess efnis að hann hafi selt Agli Bjarnasyni bóksala, útgáfubækur sínar "Námar Salomons" og "Allan Quaterman". Á sama blaði er staðfesting frá Agli Bjarnasyni hjá Vasaútgáfunni að hann sé löglegur eigandi að ofangreindum bókum.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tilboð bréfritara um að selja sýslunefnd skólahúsið í Vík, ásamt öllum kennsluáhöldum.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Á það eru handskrifaðar ýmsar athugasemdir og útreikningar. Varðar tilboð í efnisflutning. Ástand skjalsins er gott.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar malarkeyrslu í sýsluveginn í Blönduhlíð. Með liggja fimm pappírsarkir sem innihalda tilboð í verkið. Ryðskemmdir eru eftir bréfaklemmu á skjölunum, en annars er ástand þeirra gott.
Tilboðin eru annars vegar á pappírsörk í A4 stærð og hins vegar á lítinn pappírsmiða. Þau varða skurðgröft í Keflavíkurlandi. Ástand skjalsins er gott.
Tilboðin eru tölvuprentuð á fimm pappírsarkir í A4 stærð. Um fjögur tilboð er að ræða og eru þau undirrituð af tilboðsgjöfum. Ástand skjalanna er gott.
Tilboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Varðar ræsun á Fljótavegi. Með liggja pappírar sem varða sama veg, alls 5 blöð. Ástand skjalanna er gott.
Tilboðið er handskrifað á pappírsörk i A5 stærð. Það varðar tilboð í malarburð í sýsluveginn frá Réttarholti að Frostastöðum. Ástand skjalsins er gott.
Tilboð Helga Jóhannessonar, Syðstu-Grund, Akrahreppi, í jörðina Brenniborg í Lýtingsstaðahreppi, sem Daníel Ingólfsson hafði auglýst til sölu. Seljandi: Daníel Ingólfsson, kaupandi: Helgi Jóhannesson. Vottar: Adolf Gíslason og Gísli Eiríksson.
Hefti í stærðinni 25 x 15,5 cm. Hefti til heiðurs afmælisbarni. Í heftinu eru vísur á dönsku. Auk þess ljósmyndir og teikningar. Ritið er 12 bls, auk kápu. Í minnismiða sem fylgir, með rithönd Hjalta Pálssonar, stendur: "Ingvard Sörense apótekari á Sauðárkróki. Myndir úr laxveiði eru úr Héraðsvatnaósi."
"Til Kristjáns tíunda". Kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum í tilefni af afmæli Kristjáns konungs. Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 27. apríl 1947.
Ljóðið er handskrifað á miða sem límdur hefur verið á A4 pappírsörk, ásamt mynd af Jóhönnu Blöndal. Aftan á örkina er límdur minnismiði þar sem listuð er upp tónlist flutt við jarðarför Jóhönnu 19. júlí 1988.
Stafir undir kvæðinu sem gætu gefið vísbendingu um höfundinn, nema þeir eru óskýrir. Dagsetning gæti gefið til kynna að kvæðið væri samúðarkvæði vegna andláts Jóns Kristbergs Árnasonar, en hann var fyrri maður Amalíu og lést 6. mars 1926.
Hefti í A5 broti. Yfirskriftin er Fræðslu- og skemmtiútgáfa stórgæslumanns unglingastúkunnar. Heftið er gefið út í Reykjavík árið 1928. Kápan er upplituð en ástand skjalsins að öðru leyti gott.
Aftan á mynd stendur Margrét frá Köldukinn. En í ljósmyndasafni Héraðsskjalasafnsins er samskonar mynd merkt Þuríður Jakobsdóttir Lange, handavinnukennari í Reykjavík. En hún er á vis 9053, 9050- og 9052
Þrjú uppskrifuð kvæði, öll með sömu hendi. Kvæðin eru titlalaus en höfunda er getið. Pétur Jónsson á eitt, Kr. Sveinsson næsta og Pétur Hannesson það síðasta.