Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar og Magnúsar bróður hennar á þessu tímabili. Einnig eru sendibréf til Walters sem var í sveit hjá þeim Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka jólakort og myndir myndir og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna. Í series bókhaldi E, lá efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig. Í series G-4 er handskrifað bréf með stimpilmerki. Bréfið sýnist vera skírnavottorð um skírn Jón fæddur 9.janúar, skírður 2.des.ár 1916. Foreldrar, Björn Pálmason og Sigurbjörg Jónsdóttir.Ytri - Húsabakka. Dagsett, Glaumbæ 3.maí 1930.
Líklega var umslag kortsins stimplað á Siglufirði. Dagsetning: 22.12.1953. Kortið er til þeirra beggja, Magnúsar og Sigurbjargar. Umslag stílað á Magnús.
Jólakort frá mæðgunum Hallfríði Gunnarsdóttur og Sigurlaugu Öldu Þorvaldsdóttur. Kortið er til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar. Hallfríður var systir þeirra.
Kortið er frá Margréti og Hrólfi og til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar (Beggu og Manga). Mjög líklega er um að ræða hjónin Hrólf Sigurðsson (1922-2002) og konu hans, Margréti Árnadóttur (1926-2007), en þau eru bæði listmálarar.
Á umslagi er póststimpill frá Sauðárkróki og umslagið stimplað 18.12.1951. Ljósmynd af fuglum framan á kortinu. Kortið er til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar. Umslagið stílað á Magnús.
Bréfið hefst svona: Kæru gömlu vinir og félagar... og má því ætla að það sé til þeirra systkina beggja, Magnúsar og Sigurbjargar. Umslagið er stílað á Magnús.
Gunnar Ólafsson í Keflavík- Sigurlaug Magnúsdóttir kona hans og börn þeirra. Efsta röð frá vinstri: Ólafur Valgarð Gunnarsson- Magnús Gunnarsson og Jónas Jón Gunnarsson. Næst efsta röð frá vinstri: Margrét Gunnarsdóttir- Sigurbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. Næst fremsta röð frá vinstri: Sigríður Gunnarsdóttir- Jóhanna Gunnarsdóttir- Árni Gunnarsson og Anna Sigurbjörg Gunnarsdóttir. Fremst frá vinstri: Dýrfinna Gunnarsdóttir- Pétur Gunnarsson og Hallfríður Gunnarsdóttir.
Kortið er til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar, frá fjölskyldunni í Brautarholti. Jóhanna systir þeirra bjó þar ásamt manni sínum, Haraldi Stefánssyni.