Innbundin handskrifuð bók í lélegu ástandi bókakápa rifin og einnig blaðsíður en bókin er bundin saman með bandi og vel læsileg. Stofnfundabók félagsins.
2 vélrituð bréf til Sigurlaugar frá Örlygi Hálfdánarsyni. Hvoru bréfi fylgir ljósrit af ljósmynd og er verið að biðja Sigurlaugu að greina staðina á myndunum.
Útskorin minningarfjöl úr Víðimýrarkirkju tileinkuð Benedikt Halldórssyni Vídalín (1774-1821) frá Reynistað - bónda á Víðimýri og konu hans Katrínu Jónsdóttur biskups Teitssonar á Hólum. Benedikt var bróðir Reynistaðarbræðra.
Þorvaldur Ari Arason (1848-1926) var kenndur við Flugumýri og Víðimýri. Í skjalasafni hans er að finna ýmis skjöl er viðkoma búrekstri og félagsstarfi Þorvaldar en einnig eldri gögn úr fórum föður hans Ara Arasonar (1813-1881) lækni og stórbónda á Flugumýri og afa, Ara Arasonar (1763-1840) héraðslæknis og stórbónda á Flugumýri.
Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli. Segir m.a. bernsku sinni á Sjávarborg. Markús segir frá því er hann var sendur með mat handa strokufanganum Jóni Pálma, sem var á flótta vegna seðlafölsunarmálsins. Einnig segir hann frá því þegar fangi sem var í haldi vegna annars peningafölsunarmáls slapp frá Reykjavík og komst til Skagafjarðar. Jafnframt er spjallað um starfsævi Markúsar sem var sjómaður, verkamaður og bóndi og stundaði einnig ýmis konar handverk. Loks segir hann frá dulrænu atviki þegar hann var á Víðimýri og fyrirboðum í draumi.