1x skýrsla miðstjórnar Framsóknarflokksins , mars 1934. 1x tillögur til breytinga á lögum Framsóknarflokksins samþ. á aðalfundi miðstjórnarinnar - 10.feb., 1945. 1x bréf merkt "trúnaðarmál" - 20. febrúar 1945. 1x lög Framsóknarflokksins- 15. marz 1941. 1 x Bréf frá miðstjórn Framsóknarflokksins. - 20. apríl 1945.
Úrskurðurinn er fjölritaður á tvær pappírsarkir í folio stærð. Hann varðar reikninga bæjarins. Með liggur umsögn bæjarstjóra um úrskurðinn, einnig tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalsins er gott.
Stjórnarskráin er hefti í stærðinni 18,5 x 12,3 cm. Inniheldur Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands og lög umkosningar til Alþingis. Ástand skjalsins er gott.
Stefnuyfirlýsingin er fjölrituð á fjórar pappírsarkir í folio stærð. Hún varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1958. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, um er að ræða lítið en blandað safn sem í er ársskýrslur Framsóknarfélags Lýtingsstaðarhrepps, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti. Ryðguð hefti voru hreinsuð úr safninu.
4 vélrituð blöð í folio stærð. Yfirskriftin er Nokkur atriði sem frambjóðendur og stuðningsmenn A listans, lista Alþýðuflokksins, á Sauðárkróki telja að þurfi að koma í framkvæmd og að hægt sé að framkvæma á næsta kjörtímabili.
Blaðið er fjölritað á pappírsörk í A4 broti, alls fjórar síður. Það varðar stefnumál Sauðárkróksdeildar Kommúnistafélags Íslands fyrir bæjarstjórnarkosningar 1934. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á 6 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1962. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er prentað á eina pappírsörk í dagblaðabroti. Það varðar stefnumál Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga 1962, Ástand þess er gott. Blaðið er merkt Árna Jónssyni, Skógargötu 17b á Sauðárkróki.
Blaðið er prentað á eina pappírsörk í dagblaðabroti. Það varðar stefnumál Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga 1962, Ástand þess er gott. Blaðið er merkt Árna Jónssyni, Skógargötu 17b á Sauðárkróki.
Magnús Guðmundsson ráðherra í ræðustól á Sauðárkróki hugsanlega á kappræðufundi með Hermanni Jónassyni 11. júní 1934. Kristján C. Magnússon hefur æft hæfileika sína í filmuframköllun og sett mynd af Jónasi Jónssyni ráðherra frá Hriflu í bakgrunn myndarinnar.
Útgefið hefti í stærðinni 20,8x13,5. Horfurnar eftir Lárus H. Bjarnason. Alls 14 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin. Pólitískt rit.
Bókin er hefti í stærðinni 17,9 x 11 cm, alls 68 síður. Hún inniheldur ritgerðir um jafnaðarstefnuna með fórmála eftir J. Ramsey MacDonald fyrrum forsætisráðherra Breta. Ástand bókarinnar er gott.
Handbókin er hefti í stærðinni 18,5 x 12,3 cm, alls 48 síður. Hún varðar Alþingiskosningarnar í október árið 1959. Með liggur auka eintak af sömu bók. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin og handskrifuð fundagerðabók með línustrikuðum blaðsíðum, vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Þó eru hefti inni í bókinni farin að ryðga og blaðsíður byrja að losna úr bindingunni. Fundagerðir félagsins ná yfir tæplegan helming af bókinni.
Blaðið er fjölritað á ellefu pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar stefnumál I-listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru í maí 1962, Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á þrjár pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar stefnumál I-listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru í maí 1962, Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á 5 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar stefnumál Framsóknarflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga sem fram fóru 1958. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á 10 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar stefnumál Framsóknarflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga sem fram fóru 31. janúar 1954. Ástand skjalsins er gott.
Lítið en blandað safn frá Framsóknarfélagi Lýtingsstaðahrepps sem inniheldur eina innbundna og handskrifaða fundagerðabók og forprentuð og handskrifuð pappírsgögn frá tímabilinu 1931-1967 safnið látið halda sem mest uppruna sínum en því var raðað upp í ártalsröð. Í safninu eru ársskýrslur félagsins, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti. Ryðguð hefti voru hreinsuð úr.
Sjálfstæðisfélögin í Skagafirði héldu opin fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Safnahúsinu á Sauðárkróki í febrúar 1993. Á fundinn mættu einnig þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu svo og Halldór Blöndal samgönguráðherra og Geir H. Haarde þingflokksformaður. F.v. Halldór Blöndal (sést að hluta), séra Hjálmar Jónsson, sem var fundarstjóri, Davíð Oddsson, Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson varaþingmaður.
Fundur í matsal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki ca 1992-1994. F.v. Hilmar Pétur Valgarðsson Fremstagili, Stefán Guðmundsson Sauðárkróki, Páll Pétursson Höllustöðum, Ragnar Arnalds Varmahlíð, séra Hjálmar Jónsson Skr. og Vilhjálmur Egilsson. Allt þingmenn nema Hilmar Pétur, hann var formaður nemendafélags Fjölbrautaskólans. Útskrifaðist frá skólanum 1993.
Þrír af frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra í nóvember 1994. F.v. Runólfur Birgisson, Sigfús Jónsson og Vilhjálmur Egilsson, en séra Hjálmar Jónsson sigraði prófkjörið.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.
Þingmennirnir Vilhjálmur Egilsson og Ragnar Arnalds með kappræufund á Hótel Mæifelli í mars 1995 fyrir alþingiskostningarnar þá um vorið. Fremst má þekkja f.v. Önnu Halldórsdóttur, Pál Ragnarsson, Vigfús Vigfússon, Ásbjörn Karlsson, Sigurð B. Magnússon (með rauðan trefil), Steinunni Hjartardóttur og Egil Bjarnason (blátt bindi).
Bændafundur í Víðihlíð í janúar 1998 sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu boðuðu til. F.v. Stefán A. Jónsson Kagaðarhóli, Ólafur B. Óskarsson Víðidalstungu, Hjálmar Jónsson alþingismaður, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og Gísli Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins.
Frá samkomu í Miðgarði vorið 1999 til heiðurs Ragnari Arnalds og konu hans Hallveigu Thorlacius, en hann var þá að láta af þingmennsku. Við háborðið eru f.v Óþekktur, Helga Kristjánsdóttir frá Silfrastöðum, Jón Óttar Gunnarsson, Hallveig Thorlacius, Ragnar Arnalds, Margrét Frímannsdóttir form. Alþýðubandalagsins, Elín Þormóðsdóttir. (kona Þórðar) og þórður Skúlason frá Hvammstanga veislustjóri.
Frá fyrsta þingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem haldið var á Siglufirði haustið 1993. F.v. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Ragnar Arnalds alþingismaður (í ræðustóli), Þorsteinn Ásgrímsson form. Héraðsnefndar Skag. og óþekktur.