Tilgáta að þessi mynd sé tekin á Löngumýri - Gísli Gunnarsson (1957-) situr vinstra megin í sófanum. F.v Jón Jóhannsson (í svartri peysu) Gísli Gunnarsson - Tryggvi Guðlaugsson (Lónkoti) Helga Vilhjálmsdóttir Bergur Guðmundsson (frá Nautabúi) og Steingrímur Friðriksson lengst t.h.
Fjölritað hefti í A5 broti, alls 16 síður að kápu meðtalinni. Heftið er gefið út af Forlaginu Pésa og inniheldur kveðskap sem tengist presti nokkrum. Ástand skjalsins er gott.
Lestrarfélagið er safn bóka og pappírsgagna sem eru í viðkvæmu, misjöfnu ástandi en elstu gögnin hafa varðveist vel með vel læsilegan texta og fallegt ritmál. Lestrarsafnið er skipt upp i deildir I - II - III, Útskagi, Niðurskagi, Laxárdalur. Gögnin komu lítið flokkuð og ákveðið var að setja safnið niður í eins mikinn uppruna eins og hægt en flokkað er eftir efni og ártali Pappírsgögnin eru prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það. Bækurnar eru vel læsilegar en viðkvæmar. Gott væri að mynda þær til varðveislu og fróðleiks.