Handskrifaðar innnbundnar og óbundnar bækur og pappírsgögn frá U.M.F.T. Bækurnar eru flestar vel varðveittar og í góðu ásigkomulagi, sú elsta er frá stofnun ungmennafélagsins árið 1907. Í safninu er að finna fundagerðir, félagatal, bókhaldsgögn, vísur/stökur og formleg erindi. Þrjár bækur sem innihalda lög og fundareglur ungmennafélagins eru áhugaverðar og eru í sér öskju. Ákveðið var að flokka fundargerðir U.M.F.T. sérstaklega þar sem þær fylla tvær öskjur, mikið af bókhaldsgögnum eru líka í safninu. Talsvert var af stökum bókum og pappírsgögnum um ýmsa starfsemi innan félagsins sem fylla eina öskju. Gögn er tengjast knattspyrnu- og körfuboltadeildina eru flokkuð og varðveitt í sér öskjum.
Gjörðabók ungmennafélagsins Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudag 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum. Aðalreikningabók er um tekjur og gjöld félagsins Vöku og inn í bók eru 6 laus blöð um ýmsar greiðslur t.d. greiðsluábyrgð til Björns Gíslasonar vegna harmonikkukaupa sem U.M.F Vaka á fyrsta veðrétt í. Björn Gíslason skuldbindur sig að spila á dansskemmtunum sem félagið kann að stuðla til í sínu umdæmi, umrætt tímabil frá 10. okt. 1940 - 10. okt. 1942. Einnig er listi um Ungmennafélagatal 1942.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Kaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum. Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit." Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.
Bókin er harðspjalda og handskrifuð en kápan er orðin mjög léleg, rifinn og trosnuð og er bókin með límborða á kili sem heldur kili saman, en bókin er laus frá. Blaðsíðurnar eru fínar og vel læsilegar. í bók er laus lítil bók, viðskiptabók frá Sparisjóð á Sauðárkrók nr.278 um bókhald Vinagjöf frá 1904 - 1941. Ein undirrituð kvittun um úthlutun úr sjóðnum. 1939.