Umslög stíluð á Lestrarfélag Skefilsstaðahrepps (Hvammssóknar). Sum voru utan um bréf en önnur utan um bókhaldsgögn. Frímerki eru á flestum umslaganna.
Ársreikningarnir eru handskrifaðir á sjö pappírsarkir, einn fyrir hvert ár á árabilinu 1964-1970. Með reikningnum 1969 liggja tvö auka blöð. Ástand skjalanna er gott.
17 kladdar (nemendaskrár) frá árabilinu 1933-1970. Vantar nokkur skólaár inn á milli. Frá einu skólaárinu eru tveir kladdar og segir að skóli hafi hafist þann vetur. Sá kladdi mun því líklega tilheyra skólastarfi í Akrahreppi.
Á þessum síðum fjallar Sölvi um vist sína í Ærlækjarsel en þar var hann vistaður í tengslum við réttarhöldin árið 1854 sem enduðu með því að Sölvi var dæmdur til fangelsisvistar í Kaupmannahöfn.
„Segir þannig frá: að þá kom hann í Fnjóskadal,“ Hallgrímur Bjarnason og Hallgrímur Gíslason eru nefndir í þessum texta sem er einn samfeldur reiðilestur sem virðist beint að þeim tveimur.
Þessi texti fjallar um bón Jóns Bergþórssonar en hann vildi fá upphafsstafi sína skrautritaða. Nokkuð sem Sölvi gerði stundum fyrir samferðamenn sína og velgjörðarmenn. Líklega var Jón þessi fæddur 1797 og dó 1877.
Hér lýsir Sölvi vistinni hjá Jóhanni Pálssyni (1821-1862) og Margréti konu hans í Keldunesi. Honum líkar vistinn greinilega ekki vel og þykir nóg um róginn, lygina og fyrirlytninguna. Hann líkir frúnni m.a. við Gróu á Leiti.
Fyrri hlið síðunnar er reiðilestur yfir einhverjum ónafngreindum þó kemur nafnið kristján við sögu í lokin. Bakhliðin virðist vera óskyld framhliðinni en þar er Sölvi ávarpaður og honum lagðar lífsreglurnar. Hvernig hann ætti helst að haga sínu lífi.
Ýmis gögn tengd UMSS sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Minnisbók og blöð, reikningar, rekstraryfirlit, símskeyti, afsal, ýmis yfirlit og fleira.
2 erindi frá UMFÍ 1957: -Boðsbréf á athöfn þar sem til stóð að afhjúpa minnisvarða um Aðalstein Sigmundsson. -Greinargerð um vikivaka dansa þar sem ungmennafélög eru hvött til þess að taka upp kennslu á vikivaka, með fylgja bæði sönglög og vikivakaspor.
Ýmis gögn sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar tengd starfi hans innan íþróttahreyfingarinnar. Meðal annars skýrsla um hag og starfsemi Ungmennafélaganna í Norðlendingafjórðungi dagsett 1913 og yfirlit yfir skógrækt ungmennafélaga frá 1910.
Ýmsar tölulegar upplýsingar um náttúrufyrirbæri á Íslandi. Eins og t.d. lengd vatnsfalla og hitastig þeirra og hitastig Geysis og ýmsar aðrar upplýsingar um hverinn. Einnig er gerð grein fyrir hæstu fjöllum og legu landsins á jarðarkringlunni, stærð þess og helstu eyjar.
Gáta Blað með upplýsingum um afkomendur búenda í Lýtingsstaðahrepp Listi yfir eignir, vantar líklega skjöl. Tíundarhundruð haustin 1908, 1909 Lausafjárhundruð haustið 1914
Uppmælingar og teikning af Læknishúsinu á Sauðárkróki. Uppmæling og teikning gerð af Teiknistofunni Höfða. Teikningarnar merktar F.B. og Á.F. Gert á tímabilinu 1978-1979.
Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af gluggum eftir Hjalta Guðmundsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks, 1955. Líklega um prófverkefni að ræða.