Skjalið er vélritað á pappírsörk í foliostærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar útboð Hegranesbrautar. Á því er innisgli Skagafjarðarsýslu. Ástand skjalsins er gott.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 23,5x36 cm. Bókin er 440 númeraðar síður og þar af eru 5 auðar. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Tillögurnar eru er handskrifar á 2 pappírsarkir í folio stærð. Þær varða upptöku marka og samvinnu við Eyfirðinga og Húnvetninga. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð á ræktunarsjóðsláni fyrir SigPétur Hannesson, Magnús Halldórsson og Jón Sigfússon. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjárhags sýsluvegasjóðs. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, fjórar skrifaðar síður. Svör eru rituð aftan við, undirrituð af Árna Björnssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, alls 2 skrifaðar síður. Það varðar svör við athugasemdum endurskoðanda við sveitarsjóðsreikning Akrahrepps.
Símskeytið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar skuldir sýsluvegasjóðs við vegamálaskrifstofuna. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírörk í folio stærð. Varðar þörf fyrir læknisbústað á Hofsósi. Undir skjalið rita níu menn sem virðast hafa komið saman og fundað um málið, Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar nefndarálit um sjúkratryggingar. Með liggur viðbót á litlum pappírsmiða. Með liggur einnig pappírsörk í folio stærð sem hefur verið brotin utan um pappírana. Ástand skjalsins er gott.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Varðar athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Skefilsstaðahrepps fardagaárið 1914-1915. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar fjallskilareikninga hreppanna. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Stílabók í A5 broti, alls 74 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Það varðar sýsluvegagjald og flutning á berklasjúklingi. Ástand skjalsins er gott.
Samþykktin er rituð á pappírsörk í folio stærð. Hún er alls 12 greinar og fram kemur að hún hafi verið samþykkt á almennum hreppsfundi í Haganeshreppi 28. febrúar 1923.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Það er svar Björns við svari hreppsnefndar Skefilstaðahrepps varðandi útsvarskæru hans.
Athugasemdir eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Varða athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Skarðshrepps fardagaárið 1915-1916 og svör við þeim. Með liggur reikningur fyrir refaeitri. Ástand skjalanna er gott.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. "Frumvarp til samþykktar um girðingu fyrir Unadalsafrétt í Hofshreppi í Skagafjarðarsýslu." Pappírinn er orðinn slitinn á jöðrunum en annars er ástand skjalsins gott.
Skýrslan er tvær handskrifaðar síður í A4 stærð. Hún varðar afhendingu baðlyfja. Með liggja fjórir seðlar í ýmsum stærðum, er varða afhendingu baðlyfja. Skjölin eru nokkuð skemmd af ryði en annars er ástand þeirra gott.
Listinn er vélritaður á pappírsörk í folio stærð. Hann varðar skipan eftirlitsmanna með sauðfjárböðun í öllum hreppum sýslunnar. Ástand skjalsins er gott.
Álitið handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar lánsábyrgð vegna símalagningar í Skefilsstaðahreppi. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar tillögur fjármálanefndar. Með liggur miði með breytingatillögu. Ástand skjalsins er gott.