Sjálfstæðisfélögin í Skagafirði héldu opin fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Safnahúsinu á Sauðárkróki í febrúar 1993. Á fundinn mættu einnig þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu svo og Halldór Blöndal samgönguráðherra og Geir H. Haarde þingflokksformaður. F.v. Halldór Blöndal (sést að hluta), séra Hjálmar Jónsson, sem var fundarstjóri, Davíð Oddsson, Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson varaþingmaður.
Bændafundur í Víðihlíð í janúar 1998 sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu boðuðu til. F.v. Stefán A. Jónsson Kagaðarhóli, Ólafur B. Óskarsson Víðidalstungu, Hjálmar Jónsson alþingismaður, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og Gísli Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins.
Bókin er hefti í stærðinni 17,9 x 11 cm, alls 68 síður. Hún inniheldur ritgerðir um jafnaðarstefnuna með fórmála eftir J. Ramsey MacDonald fyrrum forsætisráðherra Breta. Ástand bókarinnar er gott.
Bréfið er vélritað á þrjár pappírsarkir í folio stærð, bréfsefni nefndarinnar. Það varðar stjórnmálaskóla flokksins. Ryðskemmdir eftir hefti eru á bréfinu.
Handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, um er að ræða lítið en blandað safn sem í er ársskýrslur Framsóknarfélags Lýtingsstaðarhrepps, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti. Ryðguð hefti voru hreinsuð úr safninu.
Litprentaður bæklingur í A5 broti, 8 síður. Með liggur eyðublað til að taka þátt í getraun. Varðar framboð flokksins til alþingis 1991. Ástand skjalsins er gott.
Fundur í matsal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki ca 1992-1994. F.v. Hilmar Pétur Valgarðsson Fremstagili, Stefán Guðmundsson Sauðárkróki, Páll Pétursson Höllustöðum, Ragnar Arnalds Varmahlíð, séra Hjálmar Jónsson Skr. og Vilhjálmur Egilsson. Allt þingmenn nema Hilmar Pétur, hann var formaður nemendafélags Fjölbrautaskólans. Útskrifaðist frá skólanum 1993.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðvesturkjördæmi. Óvíst um ár. F.v. Eyjólfur R. Eyjólfsson (í ræðustóli), Sigurður Sigfússon, óþekkt og Ragnar Arnalds.
Fundur í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Á myndinni eru f.v. Ragnar Arnalds fyrir Alþýðubandalagið, Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokkinn og Páll Pétursson fyrir Framsóknarflokkinn.
Frá fyrsta þingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem haldið var á Siglufirði haustið 1993. F.v. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Ragnar Arnalds alþingismaður (í ræðustóli), Þorsteinn Ásgrímsson form. Héraðsnefndar Skag. og óþekktur.
Frá samkomu í Miðgarði vorið 1999 til heiðurs Ragnari Arnalds og konu hans Hallveigu Thorlacius, en hann var þá að láta af þingmennsku. Við háborðið eru f.v Óþekktur, Helga Kristjánsdóttir frá Silfrastöðum, Jón Óttar Gunnarsson, Hallveig Thorlacius, Ragnar Arnalds, Margrét Frímannsdóttir form. Alþýðubandalagsins, Elín Þormóðsdóttir. (kona Þórðar) og þórður Skúlason frá Hvammstanga veislustjóri.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar óljóst erindi sem Gunnlaugur virðist hafa ætlað að reka fyrir Stefán. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á 7 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1958. Ástand skjalsins er gott.
Stefnuyfirlýsingin er fjölrituð á fjórar pappírsarkir í folio stærð. Hún varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1958. Ástand skjalsins er gott.
Hefti í stærðinni 22,5x15,2 sm. Heftið er alls 40 bls., auk kápu sem hefur losnað frá. Undirtitill er "Forysta Framsóknarfólksins og undanbrögð andstæðinga". Útgefandi er Miðstjórn Framsóknarflokksins.
Fundur með Davíð Oddssyni forsætisráðherra (1948-) í Bóknámshúsinu á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. F.v. Vilhjálmur Egilsson (1952-) Halldór Þormar Halldórsson (1964-) og Davíð Oddsson.
Ólafur Ragnar Grímsson (í ræðustóli) með almennan fund á Villa Nova haustið 1987, þá nýkjörinn formaður Alþýðubandalagsins. Honum á hægri hönd Karl Bjarnason og Ragnar Arnalds.
Fundur í Fjölrautaskólanum á Sauðárkróki með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Lengst t.v. Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokk, Steinunn Erla Friðþjófsdóttir fyrir Kvennalista í ræðustóli og Birgir Dýrfjörð fyrir Alþýuflokk lengst t.h. Óþektur t.v. við ræðupúltið.
Þingmennirnir Vilhjálmur Egilsson og Ragnar Arnalds með kappræufund á Hótel Mæifelli í mars 1995 fyrir alþingiskostningarnar þá um vorið. Fremst má þekkja f.v. Önnu Halldórsdóttur, Pál Ragnarsson, Vigfús Vigfússon, Ásbjörn Karlsson, Sigurð B. Magnússon (með rauðan trefil), Steinunni Hjartardóttur og Egil Bjarnason (blátt bindi).
Stjórnarskráin er hefti í stærðinni 18,5 x 12,3 cm. Inniheldur Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands og lög umkosningar til Alþingis. Ástand skjalsins er gott.
4 vélrituð blöð í folio stærð. Yfirskriftin er Nokkur atriði sem frambjóðendur og stuðningsmenn A listans, lista Alþýðuflokksins, á Sauðárkróki telja að þurfi að koma í framkvæmd og að hægt sé að framkvæma á næsta kjörtímabili.
Blaðið er fjölritað á 5 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar stefnumál Framsóknarflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga sem fram fóru 1958. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er fjölritað á 7 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar stefnumál listans fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fóru árið 1958. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er prentað á eina pappírsörk í dagblaðabroti. Það varðar stefnumál Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga 1962, Ástand þess er gott. Blaðið er merkt Árna Jónssyni, Skógargötu 17b á Sauðárkróki.
Blaðið er prentað á eina pappírsörk í dagblaðabroti. Það varðar stefnumál Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði vegna bæjarstjórnarkosninga 1962, Ástand þess er gott. Blaðið er merkt Árna Jónssyni, Skógargötu 17b á Sauðárkróki.
Blaðið er fjölritað á pappírsörk í A4 broti, alls fjórar síður. Það varðar stefnumál Sauðárkróksdeildar Kommúnistafélags Íslands fyrir bæjarstjórnarkosningar 1934. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni merkt Snorri Jóhannsson, sími 503. Með liggur kvittun úr Landsbankanum vegna innborgunar á hlaupareikning og umslag.
Heimamenn á Sauðárkróki ásamt þingmönnum á fundi ca 1981-1983. Til vinstri við borðið f.v. þingmennirnir Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Eyjólfur Konráð Jónsson þá Friðrik J. Friðriksson læknir, Ragnar Arnalds þingmaður og Árni Ragnarsson arkitekt. Hægra megin við borðið má þekkja Ástvald Guðmundsson, Þorbjörn Árnason og Magnús Sigurjónsson fjærst.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.