Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, bréfsefni oddvita Sauðárkrókshrepps. Það varðar framfærslu þurfalings. Með liggur afrit af samningi um framfærslu.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af fjölskyldu Eiríks og sumarleyfi hans á Suðurlandi. Einnig biður hann Pétur um efni í blaðið Heima er bezt. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á sjö pappírsarkir í A4 stærð. Efni bréfsins er hugleiðingar um menntun, fróðleikur um útbúnað á reiðtygjum sem nefndist starkóngur og ættfræði. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar afkomendur Önnu Jóhannesdóttur og Stefáns Benediktssonar frá Berghyl. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af heimferð bréfritara úr sveitadvöl í Minni-Brekku og skólagöngu hans. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur samhljóða eintak í stærðinni 21 x 13,7 cm. Það varðar skrif Péturs í Skagfirskar æviskrár. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afrit af bréfi frá félaginu til héraðsráðs og héraðsnefndar, sem óskað er eftir að viðtakandi kynni sér.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940. Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur við störf, segir frá lífinu í Reykjavík og spyr frétta að heiman.
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með fylgir afrit af bréfi sem er 4 bls í A4 stærð. Það bréf er afrit stílað á oddvitann í Holtshreppi og einnig stílað á bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar. Það varðar virkjunarframkvæmdir við Skeiðsfossvirkjun.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Bréfritari er sr Friðrikk Friðriksson. Það varðar fyrirhugaða stofnun KFUM á Sauðákróki. Með liggur umslag merkt Hálfdáni Guðjónssyni, en bréfið er stílað á hann. Ástand skjalsins er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur efni sem Pétur ritaði fyrir Skagfirskar æviskrá og bréf frá Eiríki Kristinssyni. Ástand bókarinnar er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar beiðni um að láta gera við sjálfblekung Péturs, sem hann hyggst senda með bréfinu. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar beiðni fyrirspurn um hjónin Guðbjörgu Halldóru Pétursdóttur frá Lambanes-Reykjum og Jósef Friðriksson. Einnig Guðrúnu Pétursdóttur frá Lambanes-Reykjum og Steingrím Þórðarson. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Á það er límd ljósmynd og inn á myndina er skrifað "Smalastöðvar í Svínadalsfjalli frá barns- og unglingsárum. J.Kr."