Bréf. Sendandi: Ingibjörg Jóhannsdóttir. Viðtakandi: Kennslumálaráðherra. Efni: Varðar verklegar greinar, t.d. vefnað, vélprjón, ýmiskonar hannyrðir og föndur og stofnuð yrði sérstök deild við skólann þar sem þessar greinar yrðu kenndar. Einnig tillaga um breytingar á skólanum. Dagsett 10.04.1957.
Bréf. Sendandi: Ingibjörg Jóhannsdóttir. Viðtakandi: Ríkisútvarpið. Efni: Auglýsing um að umsóknir í húsmæðraskólann og unglingadeild skólans þurfi að berast fyrir lok júlímánaðar. Án ártals.
Bréf. Sendandi: Lárus Jóhannesson hæstaréttarlögmaður. Viðtakandi: Aðalsteinn Eiríksson, námstjóri (efst á bréfblaði er ritað nafn Ólafs Skúlasonar, stud. theol). Efni: Varðandi ósk um að dóttir Lárusar, Jósefína Lára verði leyft þátttaka í sumarskólanum á Löngumýri. Dagsett 23.06.1954.
Bréf. Sendandi: Magnús Magnússon, sérkennslufulltrúi, Menntamálaráðuneytinu. Viðtakandi: Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra. Efni: Umsögn um greinargerð um sérdeild við Varmahlíð. Dagsett 26.01.1983.
Bréf. Sendandi: Margrét Jónsdóttir (fyrir hönd Hússtjórnarskóla kirkjunnar, Löngumýri). Efni: Umsókn um aðild að Vatnsveitufélagi Varmahlíðar vegna skólans og einnig fyrir hönd Landnáms ríksins vegna Lauftúns. Dagsett 03.10.1979.
Bréf. Sendandi: Menntamálaráðuneytið. Viðtakandi: Formaður skólanefndar Hússtjórnarskólans á Löngumýri, sr. Magnús Guðjónsson. Efni: Sjá sér ekki fært að reka hússtjórnarskólann á Löngumýri lengur en til 1. september. Er þess vænst að eigendur taki við umsjá hans eftir þann tíma. Dagsett 28.05.1982.
Bréf. Sendandi: Torfi Þórðarson, Landbúnaðarráðuneytinu. Viðtakandi: Aðalsteinn Eiríksson, námsstjóri. Efni: Bréf Ingibjargar Jóhannsdóttur frá 20.12.1956 um að tryggt verði nægt vatn til upphitunar og að Birni Rögnvaldssyni byggingameistara verði falið að hafa umsjón með lagningu hitaveitunnar. Dagsett 21.12.1956.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar kláðaskoðun vegna fjárkláða í hreppnum. Á bréfinu eru nokkrar ryðskemmdir, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handkrifað á pappírsörk í folio broti. Með liggur frumvarp til samþykktar um einkasíma í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu, vélritað á tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar síldveiðar á Skagafirði. Skjalið er nokkuð upplitað á köntunum en annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar skaðabætur vegna vegalagningar í landi Varmalands. Með liggur staðfesting á mælingu frá Bjarna H. Þorleifssyni í Sólheimum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á 16 pappírsarkir í A4 stærð, á mjög þunnan pappír. Þar af eru 14 arkir með kveðskap, m.a. Einvígisrímum, nafnagátum og lausavísum. Blöðin eru orðin rifin og hafa sum krumpast.