Bréf Vigfúsar Friðrikssonar ljósmyndara, dagsett 11. maí 1938, til Jóns Þ. Björnssonar, varðandi ljósmyndun skólabarna (unglingaskólans) við skólann á Sauðárkróki og skólaspjald. Guðmundur Trjámannsson hefur tekið ljósmyndina en hefur þá líklega starfað fyrir ljósmyndastofuna "Jón og Vigfús" á þessum tíma. Vigfús er að biðja Jón Þ. Björnsson um upplýsingar varðandi nemendur og kennara.
Laus blöð sem heftuð hafa verið saman og stílabókarkápu brugðið utan um. Fundargerðir fundarhalda hjá nemendum í Ungmennaskóla Sauðárkróks 1936-1944. Ástand skjalanna er gott.
Dagbók (kladdi) Unglinaskólans á Sauðárkróki á árunum 1908-1911 ásamt yfirliti yfir viðskipti sama skóla og "sjóðsbók" Unglingaskólans og Farskólans í Skarðshreppi.