Kennarar í gamla Barnaskólanum V/ Aðalgötu frá vinstri: Magnús Bjarnason (1900-1975) kennari á Sauðárkróki. - Friðrik Hansen (1891-1953) kennari og skáld Sauðárkróki- Þorvaldur Guðmundsson (1883-1961) kennari Sauðárkróki og Jón Þ. Björnsson (1882-1964) skólastjóri á Sauðárkróki.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki fylgdist með og skráði líkamlegan þroska skólabarna á tímabilinu 1914-1953. Í þessari bók skráir hann niður mælingar á börnum frá 1931 til 1943. Mæld var hæð, þyngd, brjóstmál (brjóstkassi), kraftur/afl og andrými.
Bréf Vigfúsar Friðrikssonar ljósmyndara, dagsett 11. maí 1938, til Jóns Þ. Björnssonar, varðandi ljósmyndun skólabarna (unglingaskólans) við skólann á Sauðárkróki og skólaspjald. Guðmundur Trjámannsson hefur tekið ljósmyndina en hefur þá líklega starfað fyrir ljósmyndastofuna "Jón og Vigfús" á þessum tíma. Vigfús er að biðja Jón Þ. Björnsson um upplýsingar varðandi nemendur og kennara.
Skrifstofa Fræðslumálastjóra sendir Jóni Þ. Björnssonar bréf, dagsettu 21. nóvember 1934, og kallar eftir upplýsingum (reikninga) varðandi seinni hluta árs 1931.