Bókin er 58 bls í A4 broti, hún er kjallímd og með litprentaðri kápu. Á titilsíðu stendur: "The flying wolf. Written by S.G. Skulason. Art by Irvin "shorty" Shope & William Standing." Bókin er árituð, merkt Jóni og undirritunin er "Mom."
Um Jón Pálmason frá Svaðastöðum, eftir konu hans Arnfríði Jónasdóttur. Fremsta blað er bréf Arnfríðar til Halldórs, dagsett á Þverá 19.01.1977. Á umslagi hefur Hannes skrifað að ljósritið sé eftir frumriti sem Halldór Sigurðsson frá Stokkhólma, gullsmiður í Reykjavík, fékk Hannesi til athugunar, 28.03.1978 og Hannes afhenti honum svo aftur.
Þáttur sr. Helga Konráðssonar um Gísla Hallsson. Á umslagi stendur að blöðin séu í fórum sr. Helga og að frú Jóhanna Þorsteinsdóttir, ekkja hans hafi fengið honum þau árið 1966.
Hefti í stærðinni 16,2 x 11,8 cm. Heftið fjallar um Sólveigu Eiríksdóttur, sem hafði viðurnefnið Lúsa-Sólveig. Útg. Fimmmenningarnir. Akureyri 1947. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Heftið er 40 bls., auk kápu.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Varðar þátttöku íbúa í Skefilsstaðahreppi í Alþingishátið. Svo virðist sem listi hafa fylgt með en glatast. Ástand skjalanna er gott.
Ljóðið er handskrifað á á pappírsörk með rithönd Árna. Efst á blaðið er búið að skrifa athugasemd: "Alli í Grímsey sendi mér svartfuglsegg, og mun það vera tilefni ljóðsins.
Efni bréfs: Þakkarkveðja vegna aðstoðar við Þjóðarátak gegn krabbameini. Handskrifaðar undirskriftir: Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri þjóðarátaksins og Dr. G. Snorri Ingimarsson, forstjóri KÍ.
Efni bréfs: Þakkarbréf til Kvenfélags Rípurhrepps fyrir stuðning varðandi hjartaómskoðunartæki handa Hjartadeild FSA. Dagsett í nóvember 2002. Handskrifaðar undirskriftir: Gísli J. Eyland, formaður og Sigurður H. Sigurðsson, gjaldkeri.
Efni bréfs: Þakkarbréf fyrir styrk sem notaður var til kaupa á hjúkrunarrúmi með fylgihlutum og Clean sturtustól. Handskrifuð undirskrift Herdísar Klausen. Meðfylgjandi er útprentun á ljósmynd.
Listinn er handskrifaður á pappírsörk í folio stærð. Með liggur minnisblað sömu stærðar. Á listanum eru taldar saman tekjur af búfénaði í hverjum af hreppum sýslunnar. Ástand skjalsins er gott.
Teikningar af kirkjuhurðum, dagsettar á Siglufirði 15/3 1982. Teikningarnar eru eftir Skarphéðin Guðmundsson og meðfylgjandi er bréf frá honum skrifað á Siglufirði árið 1982. Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, c/o Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1982.
Teikning af útiklukkunni sem er á stöðvarhúsi Gönguskarðsárvirkjunnar á Sauðárkróki. Teikningin er dagsett 04.08.1972 og eftir Örn Jónsson. Klukkuverk: Simplex. Innflytjandi: Skrifstofuvélar h/f, Otto A. Michelsen.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Inniheldur upplýsingar um verðlag til skattmats. Aftan á blaðinu eru ýmsir útreikningar. Blaðið er mjög upplitað og brúnir farnar að rifna.
Vélritað heftir í folio broti, alls 18 vélritaðar síður, gefið út af vegamálastjóra. Síðurnar eru númeraðar með blýanti og eru þær öftustu eftirrit og bréf frá Vegamálastjóra. Í heftinu er getið um hina ýmsu vegi í sýslunni.