Bréfið er afrit af bréfi sem sent er til þingmanna Norðurlands vestra og aðila innan Menntamálaráðuneytisins. Með liggur greinargerð um Skólaheimilið. Hvort tveggja ljósrit í A4 stærð.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í tvöfaldri folio stærð. Það er á bréfsefni ráðuneytisins og undirritað af Sigurði Eggerz. Með bréfinu er tilkynnt um setningu Sigurðar í embætti bæjarfógeta í Vestmannaeyjum.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar greiðslur fyrir húsaleigu fyrir Snorra son Sigurðar, fréttir af fjölskyldunni og fleira.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það er á bréfsefni ráðuneytisins og undirritað af Reyni Bjarkan. Bréfið varðar söluleyfi til Hólanefndar vegna minnismerkis um Jón Arason biskup.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afsteypur af myndum af Jóni Sigurðssyni. Með liggur umslag og fjölrituð mynd af Jóni Sigurðssyni.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð og undirritað af 5 bændum í Stílu í Fljótum. Það varðar ósk um jarðabætur vegna virkjunarframkvæmda við Skeiðsfoss.
Bréfið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar eignahlut Þórunnar í Ártúni í Hofshreppi. Með liggur skrá yfir muni Þórunnar úr búinu.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk. Það varðar lóðarsaminging í Haganesvík, yfirlýsingu um skipti á dánarbúi Þorsteins Þorsteinssonar og samning um jörðina Neðra-Haganes.