Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. F.v. Þorsteinn Ásgrímsson - Ingibjörg Sigurðardóttir - Kristbjörg Guðbrandsdóttir - Magnús Sigurjónsson - óþekkt - Björn Sigurbjörnsson - aðrir óþekktir.
2 auglýsingar frá U.M.F.T. Önnur frá skíðdeild Tindastóls (1962) þar sem Skíðalandsgangan er auglýst. Hin auglýsingin er frá sunddeild Tindastóls (ódagsett) vegna sundæfinga.
Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.
Ávarp sem flutt var við komu forseta Íslands, dr. Kristjáns Eldjárns til Sauðárkróks og Skagafjarðar í ágúst 1969. Með liggur þakkarbréf frá Kristjáni sem hann stílar á forseta bæjarstjórnar (Guðjón Ingimundarson) og barst það honum í september 1969.
Erindi sem Guðjón flutti í tilefni þess að Björn læknir og Stefán arkitekt Jónssynir færðu gagnfræðiskólanum stjörnukíki að gjöf til minningar um föður þeirra Jón Þ. Björnsson skólastjóra.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og undirritað af Stefáni Bjarman. Aftan á það eru ritaðar með blýanti nöfn þeirra sem skipa fræðsluráð, rituð af Sigurði.