Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar hrossasýningar. Með liggur reikningur vegna hrossasýninga. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á einu blaðinu, annars er ástand þeirra gott.
Pappírsörk í A5 stærð, handskrifuð. Um er að ræða eftirmæli um son Stephans, Gest Cecil (1893-1909), sem virðast hafa verið flutt yfir gröf hans. Hugsanlega er um að ræða eftirrit, en nafn Stephans er ritað undir og eftirmælin virðast hafa fylgt bréfi. Skjalið er nokkuð skemmt af óhreinindum.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í foliobroti. Með liggja athugasemdir sem eru vélritaðar á pappírsörk í A4 broti. Varðar sveitarstjóðsreikning Sauðárkrókshrepps. Bæði skjölin eru orðin stökk og skemmd á jöðrum.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar frumvarp til reglugjörðar um breyting á og viðauka við fjallskilareglugjörð Skagafjarðarsýslu. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kostnað við úttekt á Hólum. Með liggur símskeyti á handskrifuðu eyðublaði, sem varðar sömu úttekt. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kvaðningu sýslumanns til að vera viðstaddur matsgjörðir vegna afhedingar leigutaka á skólajörð og búi á Hólum. Með liggur ljósrit af samkoulagi milli Stjórnarráðs og Sigurðar Sigurðssonar um afhendingu á jörð og búi á Hólum. Einnig ljósrit af bráðabirgðasamningi milli Stjórnarráðsins og Páls Zophoníassonar. Jafnframt ljósrit af skipun matsmanna fyrir hönd sýslumanns. Enn fremur 15 seðlar þar sem taldir eru upp munir sem fylgja eigninni. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar staðfestingu endurskoðunar fjallskilareglugjörðar sýslunnar. Skjalið er nokkuð upplitað en annars heillegt.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar fyrirspurn sýslumanns um kjör í landsdóm. Með liggja þrjú símskeyti um sama mál, handskrifuð á þar til gerð eyðublöð. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á 3 arkir af þunnum pappír, líklega umbúðapappír. Með fylgja þrjár arkir sem á eru rituð ljóð, með annarri rithönd. Með liggur umslag, merkt "Sveinn Gunnarsson bréflappar."
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar greiðslu fyrir tjaldleigu á Þingvöllum fyrir gesti frá Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar meðlagsgreiðslur. Með liggur yfirlit yfir meðlagsgreiðslur í öllum hreppum sýslunnar. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar tilnefningu þriggja manna af hálfu sýslunefndar, er skipa skulu hreppsstjóra í Sauðárkrókshreppi. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar tillögur um breytingar á póstsamgöngum. Ástand skjalsins er gott.