Pappírsumslag. Á umslagið er vélritað nafn og heimilsfang Hrefnu Hermannsdóttur. Á umslagið er handskrifað með blýanti og penna kostnaður við dúnhreinsun og sendingu. Búið er að klippa frímerki af umslaginu og gata það.
Stílabókin er í stærðinni 32,3 x 20,3 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðarfróðleikur úr Fljótum og Siglufirði, að mestu í annála eða dagbókarformi. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni er uppskrift af frásögn eftir Friðfinn Jóhannsson á Egilsá,frásögn eftir Skapta Stefánsson á Nöf, frásögn úr útvarpinu af kaupstaðarferð úr Héðinsfirði til Siglufjarðar, fróðleikur um þilskipaútgerð, uppskriftir af nokkrum fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1921-1926, fróðleiksmolar um Siglufjarðarskarð og frásögn úr Fljótum. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja þrjú minnisblöð.
Stílabókin er í stærðinni 24,7 x 19,4 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðar rúmlega 300 spurningar og svör, líklega úr útvarpsþætti. ýmsir fróðleiksmolar, líklega uppskrifaðir úr bókum og blöðum. Ýmiss siglfirskur og skagfirskur fróðleikur, m.a. um Sturlungu og úr Fljótum. Nokkrar annálafærslur. Uppskriftir úr útvarpsþáttum 1958-1959. Ljóð, m.a. ljóð Gunnars S. Hafdal um Fljótin. Æviþættir o.fl. Kápa bókarinnar er farin að losna í sundur. Með liggja tvö minnisblöð.
Bók sem safnað hafa verið vísur og ýmsar setningar. Sumum stöðum skrifað á dönsku. Einnig má finna bókhald eða kosnað vegna ferðalags. Vísur sem ekki eru höfundar af.
Frá Siglufirði. Húsið fremst vinstra megin er söltunarstöðin Hafliði hf. Myndin er tekin eftir 1932. Myndin tekin til vesturs, Eyrin, Hvanneyrarskálin og svo má sjá glitta í kirkjuna.
Björn Guðmundsson (1865-1947) bóndi Á í Unadal, Skag. og Stefanía Jóhannesdóttir (1873-1953) t.h. Börn þeirra Sigurlaug Björnsdóttir (1895-1966), síðar búsett á Siglufirði og Pétur Björnsson (1897-1978) síðar kaupmaður á Siglufirði, síðast Reykjavík.
Páll Jónsson trésmiður á Siglufirði- kona hans- Guðbjörg Eiriksdóttir- og börn þeirra- Pálmi frá vinstri : Olga Eyland- Sverrir Eyland og Haraldur Eyland
Frá 50 ára vígsluafmælis Siglufjarðarkirkju í ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á lofti kirkjunnar, en áður hafði loftið verið notað við kennslu.
Tilgáta. Frá 50 ára vígsluafmæli Siglufjarðarkirkju í lok ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á kirkjuloftinu, en áður hafði loftið verið notað til kennslu. Pétur Sigurgeirsson biskup er lengst t.v. og Auður Auðuns ráðherra við hlið hans.
Afmælishátíð á Siglufirði sumarið 1998, þar sem þess var minnst að 180 voru frá því Siglufjörður varð verslunarstaður og 80 á frá því hann fékk kaupstaðaréttindi. Á myndinni leikur Stórsveit síldarplansins fyrir dansi.
Bridgesveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglufirði, F.v. Bogi Sigurbjörnsson, Anton Sigurbjörnsson, Jón Sigurbjörnsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson, allt bræður.
Pappírsskjal í stærðinni A5, þunn örk sem rifin hefur verið af stærri örk. Vélritað bréf til Hrefnu Hermannsdóttur frá Dúnhreinsun SÍS, undirritað af Ófeigi Péturssyni.