Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Eyþór J. Hallsyni á Hofsósi. Meðfylgjandi er umslag, stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Símskeytið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. það varðar mótmæli á rýmkun heimildar til dragnótaveiða og er stílað á Jóns Sigurðsson alþingismann. Ástanda skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Það varðar umfjöllum almenns fundar í Hegranesi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og er bréfið undirritað af Eggert Briem.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti. það ritar allsherjarnefnd á sýslufundi. Það varðar fiskveiðisamþykkt á Málmeyjarsundi. Ástand skjalsins er gott.
Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson og Helgi Guðmundsson bróðir hans- í "salnum"- Lárus Runólfsson Sauðárkróki og Aðalsteinn Jónsson. Safn Kr. C. Magnússonar.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það er merkt eftirrit. Undir það rita nokkrir bændur í Fells- og Hofshreppum. Það varðar fiskveiðisamþykkt á Málmeyjarsundi. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, ein skrifuð síða. Það varðar undirbúningsfund fyrir sýslunefndarfund. M.a. herpinótaveiði, nýtingu Drangeyjar, vegamál og fjallskilamál.
Gamla bryggjan austan Aðalgötu á Sauðárkróki. Sjá brautarteinana sem lágu til fiskvinnsluhússins. F.v. Siggi og Helgi Guðmundssynir í Salnum og Aðalsteinn Jónsson bróðir Eiríks bónda á Beinakeldu - A-Hún. (ca. 1955-1960).
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.