- IS HSk N00036-B-7
- Item
- 1906
Part of Ingrid Hansen: Skjalasafn
Bréf sem skrifuð eru árið 1906-
3 results with digital objects Show results with digital objects
Part of Ingrid Hansen: Skjalasafn
Bréf sem skrifuð eru árið 1906-
Bréf Minnu Cambell til Sigríðar Sigurðardóttur
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar bréf sem móðir Minnu fékk frá fósturforeldrum sínum og einnig dagbók Steinunnar Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Með liggja tvö ljósrit úr dagbók og 21 pappirsörk í A4 stærð sem er uppskrift úr dagbók.
Einnig ljósrit af umslagi sem bréfið frá Minnu hefur borist í.
Ástand skjalanna er gott.
Byggðasafn Skagfirðinga (1948 -
Bréf Héraðsskjalasafns Skagfirðinga til Akraskóla
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni safnsins. Það varðar vöðtöku á gögnum sem skólinn afhenti safninu í júní árið 1993. Með liggur listi yfir gögn afhent árið 1988 frá héraðsskjalaverði og listi yfir gögn afhent árið 1999 frá skólastjóra.
Grunnskóli Akrahrepps
Afrit af bréfi Skólaheimilisins á Egilsá til þingmanna Norðurlands vestra
Bréfið er afrit af bréfi sem sent er til þingmanna Norðurlands vestra og aðila innan Menntamálaráðuneytisins. Með liggur greinargerð um Skólaheimilið. Hvort tveggja ljósrit í A4 stærð.
Grunnskóli Akrahrepps
Bréf Hjartar Kr. Benediktssonar til Byggðasafns Skagfirðinga
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls 4 síður.
Það varðar muni sem vantar í Byggðasafnið og hugmyndir um að láta smíða þá.
Ástand skjalsins er gott.
Byggðasafn Skagfirðinga (1948 -
Afrit af bréfi Sigríðar Sigurðardóttur til Ola K. Olson
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð.
Með liggur staðfesting Sigríðar á að hún hafi sent afrit af bréfi dags. 16.12.1895 til Ola K. Olson.
Einnig liggur með ljósrit af umræddu bréfi frá 1895.
Ástand skjalsins.
Byggðasafn Skagfirðinga (1948 -
Uppkast að bréfi Péturs Jónassonar til Eiríks Kristinssonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 stærð.
Það varðar beiðni fyrirspurn um hjónin Guðbjörgu Halldóru Pétursdóttur frá Lambanes-Reykjum og Jósef Friðriksson.
Einnig Guðrúnu Pétursdóttur frá Lambanes-Reykjum og Steingrím Þórðarson.
Ástand skjalsins er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur efni sem Pétur ritaði fyrir Skagfirskar æviskrá og bréf frá Eiríki Kristinssyni.
Ástand bókarinnar er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Bréf Hannesar Hannessonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð.
Það varðar ætt Péturs, sem rakin er til Vatnsfjarðar-Kristínar.
Ástand skjalsins er gott.
Hannes Hannesson (1888–1963)
Uppkast að bréfi Péturs Jónassonar til óþekkts viðtakanda
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er ritað á tvær pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar beiðni um að skipta á eintökum af Skagfirskum æviskrám.
Viðtakandi er ekki tilgreindur en líklegt má telja að hann sé Eiríkur Kristinsson.
Ástand skjalsins er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Uppkast að bréfi Péturs Jónassonar til óþekkts viðtakanda
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 stærð.
Það varðar beiðni um að láta gera við sjálfblekung Péturs, sem hann hyggst senda með bréfinu.
Ástand skjalsins er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Uppkast að bréfi Péturs Jónassonar til Valbergs Hannessonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar beiðni um að senda skrif Hannesar Hannessonar, föður Valbergs, í tímaritið Heima er bezt.
Ástand skjalsins er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Uppkast að bréfi Péturs Jónassonar til Eiríks Kristinssonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð.
Með liggur samhljóða eintak í stærðinni 21 x 13,7 cm.
Það varðar skrif Péturs í Skagfirskar æviskrár.
Ástand skjalsins er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Bréf Stefaníu Jónsdóttur til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar ætt Stefaníu.
Ástand skjalsins er gott.
Stefanía Guðrún Jónsdóttir (1925-2021)
Bréf Kolbeins Kristinssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð.
Efni bréfsins eru upplýsingar um dætur Kolbeins.
Ástand skjalsins er gott.
Kolbeinn Kristinsson (1895-1983)
Bréf Kolbeins Kristinssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð.
Efni bréfsins er ættfræði Guðrúnar Jónsdóttur, ömmu Péturs og Kolbeins.
Ástand skjalsins er gott.
Kolbeinn Kristinsson (1895-1983)
Bréf Kolbeins Kristinssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Efni bréfsins er ættfræði og kirkjuklukkuna Líkaböng.
Ástand skjalsins er gott.
Kolbeinn Kristinsson (1895-1983)
Bréf Kolbeins Kristinssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar fyrirspurn um ættir konu Péturs sem og Margrétar Jónsdóttur o.fl.
Ástand skjalsins er gott.
Kolbeinn Kristinsson (1895-1983)
Bréf Kolbeins Kristinssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk.
Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs.
Blöðin eru upplituð og óhrein.
Kolbeinn Kristinsson (1895-1983)
Bréf Jóns Inga Hjálmarssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Efni þess eru fréttir af heimferð bréfritara úr sveitadvöl í Minni-Brekku og skólagöngu hans.
Ástand skjalsins er gott.
Jón Ingi Hjálmarsson (1950-)
Bréf Jónasar Stefánssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar afkomendur Önnu Jóhannesdóttur og Stefáns Benediktssonar frá Berghyl.
Ástand skjalsins er gott.
Jónas Sigurður Stefánsson (1917-2000)
Póstkort Jóhanns Ólafssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Póstkort í stærðinni 10x15 cm.
Á póstkortinu er ljósmynd af Almannagjá á Þingvöllum.
Efni þess er jólakveðja frá Jóhanni.
Ástand skjalsins er gott.
Jóhann Ólafsson (1891-1972)
Bréf Jóhanns Benediktssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar afkomendur Jóhanns.
Ástand skjalsins er gott.
Jóhann Benediktsson (1889-1964)
Bréf Hannesar Hannessonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á þrettán pappírsarkir í A4 stærð.
Efni bréfsins er ættir Grundar-Helgu.
Ástand skjalsins er gott.
Hannes Hannesson (1888–1963)
Bréf Hannesar Hannessonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á sjö pappírsarkir í A4 stærð.
Efni bréfsins er hugleiðingar um menntun, fróðleikur um útbúnað á reiðtygjum sem nefndist starkóngur og ættfræði.
Ástand skjalsins er gott.
Hannes Hannesson (1888–1963)
Bréf Guðrúnar Jónsdóttur til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð.
Það varðar fréttir af fjölskyldu Guðrúnar.
Ástand skjalsins er gott.
Guðrún Jónsdóttir (1920-2011)
Bréf Guðrúnar Jónsdóttur til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar fréttir af fjölskyldu og sveitungum.
Ástand skjalsins er gott.
Guðrún Jónsdóttir (1920-2011)
Bréf Eiríks Eiríkssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð.
Efni bréfsins er efni sem Pétur hefur sent honum með birtingu í Heima er bezt í huga, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni.
Ástand skjalsins er gott.
Eiríkur Eiríksson Akureyri
Bréf Eiríks Eiríkssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð.
Fremstu síðuna vantar.
Efni bréfsins er ættfræði, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni.
Ástand skjalsins er gott.
Eiríkur Eiríksson Akureyri
Bréf Eiríks Eiríkssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð.
Efni þess eru fréttir af fjölskyldu Eiríks og sumarleyfi hans á Suðurlandi.
Einnig biður hann Pétur um efni í blaðið Heima er bezt.
Ástand skjalsins er gott.
Eiríkur Eiríksson Akureyri
Bréf Eiríks Eiríkssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á þrjár pappírsarkir í A4 stærð.
Það varðar innbindingu á bókum og ættfræði.
Upplýsingar eru í bréfinu um m.a. Jón Auðunsson, Kristján og Sigurjón.
Einnig fréttir af fjölskyldu Eiríks.
Ástand skjalsins er gott.
Eiríkur Eiríksson Akureyri
Bréf Björns Sigtryggssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar æviágrip um Guðmund Jónsson barnakennara sem m.a. bjó í Fljótum.
Björn Sigtryggsson (1901-2002)
Bréf Bjarna Péturssonar til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á þrjár pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar ættir Bjarna og Péturs.
Ástand skjalsins er gott.
Bjarni Pétursson (1919-1993)
Bréf Báru Pétursdóttur til Péturs Jónassonar
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð.
Það varðar fréttir af heilsufari og atvinnu hjá fjölskyldumeðlimum.
Ástand skjalsins er gott.
Bára Pétursdóttir (1937-2015)
Bréf Friðriks Friðrikssonar til KFUM á Sauðárkróki
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Bréfritari er sr Friðrikk Friðriksson.
Það varðar fyrirhugaða stofnun KFUM á Sauðákróki.
Með liggur umslag merkt Hálfdáni Guðjónssyni, en bréfið er stílað á hann.
Ástand skjalsins er gott.
Friðrik Friðriksson (1910-2008)
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Skrautritað umslag, merkt KFUM.
Steingrímur Benediktsson (1901-1971)
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Símskeytin eru handskrifuð á þar til gerð eyðublöð.
Tvö skeyti, annað ein síða en hitt fimm síður.
Ástand skjalanna er gott.
Steingrímur Benediktsson (1901-1971)
Bréf Steingríms Benediktssonar til KFUM
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar hugleiðingar um hamingjuna.
Ástand skjalsins er gott.
Steingrímur Benediktsson (1901-1971)
Bréf Steingríms Benediktssonar til KFUM
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð.
Það varðar suðurferð Steingríms og fundi sem hann sótti þar.
Ástand skjalsins er gott.
Steingrímur Benediktsson (1901-1971)
Bréf Jóhannesar Tangeraas til Steingríms Benediktssonar
Part of KFUM á Sauðárkróki: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Það er ritað á norsku.
Ástand skjalsins er gott.
Jóhannes Tangeraas
Pappírsörk í A4 stærð.
Á örkinni er merki SÍBS, Sambands íslenskra berklasjúklinga.
Ástand skjalsins er gott.
Samband íslenskra berklasjúklinga
Bréf Sögufélags Skagfirðinga til Akrahrepps
Part of Akrahreppur: Skjalasafn
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afrit af bréfi frá félaginu til héraðsráðs og héraðsnefndar, sem óskað er eftir að viðtakandi kynni sér.
Akrahreppur (1000-)
Bréf frá Þormóði Sveinssyni 1955
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Part of Iðnskóli Sauðárkróks: Skjalasafn
Bréf frá Fræðslumálastjóra vor 1951. Ósk um upplýsingar um skólaár og rekstur iðnskólans.
Part of Arngrímur Sigurðsson: Skjalasafn
Gangnaboð í Staðarhreppi mánudaginn 23. september 1918 frá Hreppsnefndinni.
Bréf til hreppsnefndar Staðarhrepps
Part of Arngrímur Sigurðsson: Skjalasafn
Áframsent bréf frá oddvita Vindbælishrepps og hreppsnefnd Engilhlíðarhrepps til hreppsnefndar Staðarhrepps. Bréf í tengslum við Skrapatungurétt.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940.
Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.
Bréf til Þórarins Jónssonar frá Kristínu Símonardóttur
Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Kristín telur upp kosti og hæfileika Karlottu í bréfinu og gefur henni sín bestu meðmæli.
Bréf Karls Dúasonar til Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar ósk um leigu á Drangey.
Sigurður Sigurðsson (1887-1963)
Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.
Bréf frá Jónasi bróður Halls. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann býr og starfar. Þeir eru að skrifast á um bíl sem Jónas hefur skoðað fyrir Hall.
Bréf frá Gunnlaugi bróður Halls. Gunnlaugur skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur á leið sinni heim frá Laugarvatni. Gunnlaugur stoppaði í Reykjavík til að vinna í nokkrar vikur áður en hann héldi norður í land.
Bréf frá Siggu frænku til Halls, engin dagsetning.
Fermingarkort frá Felix og Euphemíu
Kveðja á fermingardaginn frá Felix og Euphemíu.
Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.
Bréf frá Jóni Sigurðssyni alþingismanni. Jón skrifar Gunnlaugi varðandi leiðréttingar á fjártölum og segir bæði Gunnlaug og Steinunni móður hans fá leiðréttingar á uppeldisstyrk á lömbum sem voru sett á haustið 1941.
Bréf frá Steinunni Sigurjónsdóttur
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Uppkast að bréfi til Boga Brynjólfssonar
Bréf frá Gunnlaugi til Boga Brynleifssonar fyrv. sýslumanns. Gunnlaugur er að ræða um tún sem hann hirðir fyrir Boga á Hofi?
Bréf frá Halli Jónassyni til Gunnlaugs bróður hans. Hallur segir frá lífinu á Akureyri og spyr frétta úr Skagafirðinum. Hann segir Gunnlaugi að vera í sambandi við sig varðandi kaup á byggingarefni því mögulega sé ódýrara að fá efni á Akureyri og hann geti aðstoðað með flutning.
Inngöngubréf í Laugarvatnsskóla
Inngöngubréf frá Laugarvatnsskóla til Gunnlaugs þar sem honum er veitt skólavist n.k. vetur gegn þeim skilyrðum sem upp eru talin í bréfinu. Í bréfinu er meðal annars tekið fram að nemendur skuli vera vel hraustir, hafi siðferðisvottorð frá málsmetandi manni og neyti hvorki áfengra drykkja né tóbaks á meðan þeir dveilja í skólanum.Einnig er talið upp hvað nemendur þurfi að hafa meðferðis í skólann og hvaða reglur gildi um dvöl þeirra í skólanum.
Bréf til Maddýar frá Sigurði. Líklega er Maddý pennavinkona Sigurðar úr barnablaðinu Æskunni. Sigurður segir henni frá lífinu í Hátúni en þegar þetta er skrifað er faðir Sigurðar nýlega fallinn frá.
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður skrifar pennavinkonu sinni og segir henni frá því hvað hefur á daga hans drifið frá því hann skrifaði henni síðast.
Uppkast að bréfi til Hrefnu Sigmundsdóttur
Uppkast að bréfi sem Sigurður skrifar til pennavinkonu sinnar Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður er að lýsa sjálfum sér sem og þeim aðstæðum sem hann býr við í Skagafirði.
Bréf frá Halli Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Hallur skrifar frá Vestmannaeyjum þar sem hann dvelur. Segir Sigurði frá því að hann sé búinn að fá sér hjól en spyr jafnan frétta að heiman, bæði varðandi búskapinn og hvernig landskipti hefðu farið fram eftir að prófasturinn kom í heimsókn.
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur til Sigurðar, jólin 1942.
Gunnlaugur Jónasson skrifar Sigurði bróður sínum. Gunnlaugur skrifar frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Gunnlaugur er í bréfinu að biðja Sigurð fyrir því að senda sér 500 krónur á Laugarvatn. Spyr jafnframt frétta af mæðuveikinni sem nú geysar í Skagafirði.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur við störf, segir frá lífinu í Reykjavík og spyr frétta að heiman.
Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Bréfið skrifar Gunnlaugur frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir Sigurði frá lífinu á Laugarvatni og spyr frétta að heiman.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Hann sendir Sigurði nýárskveðjur og spyr hann spurninga varðandi útvarpstæki sem Sigurður hefur í Hátúni og hvernig það virkar.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Sendir Sigurði samúðarkveðjur vegna fráfalls föður hans.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur frá Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Vestmannaeyjum. Hrefna segist nú vera flutt til Reykjavíkur og ætli sér að hætta að skrifast á við Sigurð, þetta sé því síðasta bréfið frá henni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Hrefnu og mynd af heimili hennar.
Bréf frá óþekktum í Hafnarfirði
Bréf skrifað frá Hafnarfirði fyrir jólin 1937, fyrst og fremst verið að óska Sigurði gleðilegra jóla en undirskriftin er mjög ógreinileg.
Afrit af bréfi Sigurðar Sigurðssonar til Stefáns A. Pálssonar
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar miðasölu fyrir Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður A. Pálsson
Afrit af bréfi Sigurðar Sigurðssonar til Elínar Blöndal
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar útsvarsgreiðslur Elínar.
Elín Sigríður Magnúsdóttir Blöndal (1894-1975)
Bréf Elínar Blöndal til Sigurðar Sigurðssonar
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á fjórar pappírsarkir í stærðinni A4 og undirritað af Elínu.
Elín Sigríður Magnúsdóttir Blöndal (1894-1975)
Undirskriftalisti vegna mats á eignarjörðum á áhrifasvæði Skeiðsfossvirkjunar
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð og undirritað af 5 bændum í Stílu í Fljótum. Það varðar ósk um jarðabætur vegna virkjunarframkvæmda við Skeiðsfoss.
Sigurður Sigurðsson (1887-1963)
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.
Guðjón Ingimundarson (1915-2004)
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Erindi til stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga frá Árna Kristjánssyni þar sem hann óskar eftir að kaupa jörðina Hof í Seyluhreppi.
Guðjón Ingimundarson (1915-2004)
Part of Barnakennarafélag Skagafjarðar
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.
Barnakennarafélag Skagafjarðar
Part of Barnakennarafélag Skagafjarðar
Fundargerðin er rituð á pappírsörk í folio stærð. Um er að ræða drög þar sem hluti textans er í stikkorðum og búið að færa inn ýmsar útstrikanir og leiðréttingar.
Barnakennarafélag Skagafjarðar
Part of Barnakennarafélag Skagafjarðar
Forsíðan er pappírsörk í folio broti. Á hana er ritað, með skrautletri:
"Fundargerðir frá fundum skagfirskra barnakennara árin 1893 og 1894."
Barnakennarafélag Skagafjarðar
Part of Barnakennarafélag Skagafjarðar
Fundagerðin er rituð á pappírsörk í folio broti. Á fundinum var félagið formlega stofnað. Með liggja tvö samrit af sömu fundargerð.
Barnakennarafélag Skagafjarðar