Heimsókn Forseta Íslands Vigdísar Finnbogadóttur til Skagafjarðar 23.-25. ágúst 1991. Talið frá vinstri: Vigdís Finnbogadóttir- Valborg Hjálmarsdóttir- Sigurjón Stefánsson- Tryggvi Guðlaugsson og Jón Jónsson. Mynd tekin á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki- 25.08.1991. Gefandi: Héraðsnefnd Skagfirðinga.
Ólafur Lárusson (t.v.) og Tryggvi Guðlaugsson (t.h.). Grein í Feyki 5. október 1988. Myndin er tekin á deild 5 á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 2. október 1988. Úr myndasafni Feykis.
Tryggvi segir frá áflogum tveggja drengja og kaupstaðarferð þeirra ásamt fleirum til Grafaróss (0:00:00-0:15:00) Suð á upptökunni. Tryggvi segir frá ofsaroki í september 1930 og björgun tveggja manna (Friðrik Guðmundsson og Kristján Kristvinsson) (0:15:00 til enda)
Tryggvi segir frá lestrarfélaginu, leiksýningum og fleiri samkomum. Stofnun ungmannafélagsins Einingar. Stofnun Kaupfélagsins og uppskipun fyrstu vörusendingarinnar til kaupfélagsins.
Friðrik læknir ræðir við Jón Norðmann Jónasson frá Selnesi (0:00:00-0:06:10) Ekki góð upptaka. Síðar á upptökunni segir Tryggvi frá Lónkoti frá Sveini Sveinssyni (lagsmanni)
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti Hlið A - Tryggvi segir frá veru sinni á Nautabúi í Hjaltadal en þangað flutti hann 1906 úr Svarfaðadal. Og svo frá veru sinni á Skálá en þangað flutti hann 1909. Sr. Gunnar Gíslason kemur inn í lok samtalsins. Hlið B - Tryggvi segir frá unglingsárum sínum og þegar unglingsstúlka Herdís Guðný Konráðsdóttir varð úti 1913. Og svo frá búskaparárum sínum á Keldum.
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti Hlið A - Tryggvi segir frá stofnun lestrarfélagsins og starfsemi þess. Og sundkennslu á Bræðrá. Segir frá því er hann lærði á fiðlu, leikstarfsemi og fleiru. Hlið B - Tryggvi segir frá þegar hann kaupir Lónkot 1934, veiðiskap í lóninu og fjárréttum.
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti Hlið A - Tryggvi segir frá harðindavorinu 1918 og ferð til Siglufjarðar með kvígu til slátrunar. Hlið B - Tryggvi segir frá fjárrekstri til Siglufjarðar og eftirmála þess. Þá segir hann frá útvarpskaupum sínum 1933 þá búandi á Yst-hóli. Segir frá sunnanroki sem gerði þá um haustið og björgun manna á sjó.
Heimsókn Forseta Íslands Vigdísar Finnbogadóttur til Skagafjarðar 23.-25. ágúst 1991. Talið frá vinstri: Tryggvi Guðlaugsson- Jón Jónsson og Jón Stefánsson skála fyrir forseta. Mynd tekin á Dvalarheimili aldraðra- Sauðárkróki 25.08.1991. Gefandi: Héraðsnefnd Skagfirðinga.
Tryggvi segir frá uppskipun á vörum í Mýrnavík og ferðum á sjó (0:00:00-0:22:00) Tryggvi segir frá stofnun Lestrarfélags Fellshrepps á Skálá (0:22:25-0:29:40)
Tryggvi segir frá Tómasi Jónassyni á Mið-Hóli og stofnun Kaupfélags Fellshrepps á Mið-Hóli sem verður síðar Kaupfélag Austur-Skagfirðinga Hofsósi. Þá segir hann frá viðskiptum við Kaupfélagið og Kjötbúð Siglufjarðar.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi en bókin er með 192 tölusettar blaðsíður. Nokkuð ryð í heftum í bók og blaðsíður blettóttar en vel læsilegar. Bókin inniheldur fundagerðir, bókhald og meðlimaskrá og aftast bókalisi yfir keyptar bækur 1939 - 1940.
Hjalti Pálsson ræðir við Tryggva um fjárkaupaferð á Hornstrandir (0:00:00-0:04:20) Tryggvi segir frá giftingu á Arnarstöðum uppúr aldamótunum 1900 (0:04:35-0:19:50)
Framhald af 8b. Tryggvi segir frá Tómasi Jónassyni Kaupfélagsstjóra frá Mið-Hóli og Eiði Sigurjónssyni og kennslu hans á Skálá. Stofnun Lestrarfélagsins 1918.
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti Hlið A - Tryggvi segir frá kaupum sínum á Lónkoti og ýmsu sem á daga hans dreif þar. Hlið B - Tryggvi segir frá samskiptum þeirra Gísla Konráðssonar og ýmsar frásagnir.
Tryggvi segir frá ferð tveggja manna frá Lónkotsmöl til Siglufjarðar 1930. Þeir heita Friðrik Guðmundsson og Kristján Kristvinsson (0:00:00-08:40:00) Sæmileg upptaka. Tryggvi segir frá námskeiði fyrir bændur, haldið á Hólum 1934 (0:09:00 til enda) Sæmileg upptaka.
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti. Hlið A - Tryggvi segir frá viðskiptum föður síns við Lúðvík Grímsson með kú 1917. Tryggvi segir frá kaupum á Ysta-Hóli. Tryggvi segir frá sjómennsku á Hjalteyrinni frá Akureyri. Hlið B - Áframhald á frásög frá sjómennsku Tryggvi segir frá veru sinni heima og á Siglufirði.
Egill ræðir við Tryggva Guðlaugsson frá Lónkoti. Hlið A - ónýtt Hlið B - Tryggvi segir frá háskaför á sjó og landtöku um haustið 1927 á Hofsósi. Tryggvi segir frá háskaför heim til sín að Yst-Hóli frá Siglufirði að lokinni giftingu sinni árið 1928 Krakki les sögu - slæm upptaka
Tilgáta að þessi mynd sé tekin á Löngumýri - Gísli Gunnarsson (1957-) situr vinstra megin í sófanum. F.v Jón Jóhannsson (í svartri peysu) Gísli Gunnarsson - Tryggvi Guðlaugsson (Lónkoti) Helga Vilhjálmsdóttir Bergur Guðmundsson (frá Nautabúi) og Steingrímur Friðriksson lengst t.h.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi og pappírsgögn í misgóðu ástandi, blettótt, rifin og með ryðblettum eftir bréfklemmur sem eru hreinsaðar burtu ásamt heftum.