53 reikningar og greiðslutilkynningar frá hinum ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Flestir stílaðir á Guðmund Davíðsson. Einn er þó stílaður á Jónmund Halldórsson á Barði, einn á Pétur Jónsson og einn á Pétur Jóhannsson á Hömrum.
Bréf Péturs Jónssonar til Hermanns Jónssonar á Ysta-Mói (tilgáta). Í bréfinu segir frá viðskiptum Péturs við Samvinnufélag Fljótamanna og segir jafnframt frá lífinu í Fljótum. Sérstaklega er gert grein fyrir haustferð um Siglufjarðarskarð sem átti sér stað einhvertíman á árunum 1924-1932.
Skjöl úr dánarbúi Péturs Guðmundssonar á Hraunum í Fljótum. Einkum kveðskapur, gögn viðvíkjandi Búnaðarsambandi Skagfirðinga og Ungmennafélagi Holtshrepps.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Myndir er orðin nokkuð skemmd af óhreinindum og spjaldið rispað og skemmt og búið að brjóta upp á það. Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Ólöf Einarsdóttir, húsfreyja,
Bessi Einarsson (bróðir Ólafar?),
Beinteinn Bjarnason, Siglufirði
Guðmundur Bjarnason, Bakka, Siglufirði,
Þormóður Eyjólfsson, Siglufirði
Jórunn Sigurðardóttir frá Hraunum (síðari eiginkona Lúðvíks Guðmundssonar útgerðarmanns),
Einar B. Guðmundsson
Dagbjört Magnúsdóttir, kona hans
Bjarni Þorsteinsson, prestur Siglufirði,
Sigríður Blöndal Lárusdóttir, kona hans,
Sigríður Jónsdóttir, kona Helga Hafliðasonar,
Matthías Hallgrímsson, Siglufirði,
Guðmundur Davíðsson, bóndi og hreppstjóri, Hraunum,
Halldór Jónasson, kaupmaður Siglufirði,
Helgi Hafliðason, kaupmaður og útgerðarmaður Siglufirði,