Fæðingar óvenju margar á Sauðárkróki í ágúst árið 1999, Kristjana Elísabet Jónsdóttir (1968-) með son sinn Jón Grétar Guðmundsson. Helga Hauksdóttir (1963-) með son sinn Sigurð Inga Hjartarson. Sólveig Arna Ingólfsdóttir (1977-) með dóttur sína Katrínu Evu Andrésdóttur. Erla Valgarðsdóttir (1964-) með son sinn Ísak Róbertsson. Edda María Valgarðsdóttir (1967-) með dóttur sína Ástrósu Evu Guðnadóttur.
Bréf Lárusar Thorarensen sýslumanns til hreppstjóranna í Akrahreppi frá árinu 1838 varðandi yfirsetukonuna Guðbjörgu Semingsdóttur og greiðslu til hennar.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar.Varðar bréf til landlæknis vegna yfirsetukonu í Fellshreppi. Eitt horn hefur rifnað af blaðinu, annars er ástand þess gott.
Tillögurnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða skipan Maríu Magnúsdóttur og Jóninnu Margrétar Sveinsdóttur í embætti ljósmæðra. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar skipan Sigríðar Jóhannsdóttur í starf yfirsetukonu í Staðar- og Seyluhreppum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Varðar meðmæli með umsóknum Bjargar Sveinsdóttur og Jónu Kristinsdóttur um ljósmóðurstörf. Ástand bréfsins er gott.
Minningargreinin er tölvuprentuð á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Hún er skrifuð af Sigríði Jónsdóttur, barnabarni Sigríðar Ásgeirsdóttur. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar undirbúningsfund fyrir sýslunefndarfund. M.a. sýsluvegi, ráðningu yfirsetukonu og samgöngubætur í úthreppum.
Tveir handskrifaðir lappar. Varða meðmæli fyrir Sólgborgu Hjálmarsdóttur í starf ljósmóður, annars vegar frá hreppsnefnd og hins vegar frá sýslunefnd. Ástand skjalanna er gott.
Minningarskjalið er í 31x42,5 cm brotim, alls fjórar síður. Með því liggur snúra í fánalitum. Það er skrautritað og bundið í leðurkápu sem einnig er skreytt. Innan á hana er límdur pappír með marmaraáferð. Skjalið er útbúið af Jóhannesi Geir og merkt honum. Skjalið gáfu konur í Skefilsstaðahreppi Sigríði sem þakklætisvott um ljósmóðurstörf hennar. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar umsókn Ingibjargar Frímnannsdóttur ljósmóður um greiðslu eftirlauna. Ástand skjalsins er gott.
Skjal í folio stærð. Áskoranir almenns bændafundar sem haldinn var í Haganeshreppi. Varða m.a. launaviðbót til ljósmóður, þörf fyrir nýja brú yfir Fljótaá og viðgjörð á Móskógabrú.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar meðmæli sýslunefndar til skipan Sölvínu Konráðsdóttur á Mýrum í Fellshreppi sem ljósmóður. Ástand skjalsins er gott.