1 handskrifað bréf frá 1946. Bréf ritar Hjálmar Þorgilsson. Ritað á Kambri í apríl 1946. Með bréfinu fylgir æviágrip Árna Sigurðssonar f. 5.2.1781, d. 7.7.1871 og eftirmæli er kveðið hafi Hjálmar Jónsson frá Bólu 1871. Sá sem skrifar upp eftirmælin er Ólafur Sæmundsson. Þau eru rituð á tvær blaðsíður og er ástand mjög lélegt. Blaðsíðurnar hafa liðast í sundur.
Þetta kemur frá heimilisfólkinu á Litlu-Gröf. Ekki víst hvort bréf og skjöl tengjast.
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,9 cm. Bókin inniheldur ljóð eftir Bólu-Hjálmar, ásamt fáeinum öðrum ljóðum, uppskrift af leikriti og uppskrift úr útvarpsþætti frá 1949. Ástand bókarinnar er gott.