Í safni sem var D1 eru innbundnar bækur og pappírsgögn, sum í tvíriti, önnur eru afrit af skjölum. Gögnin tengjast úthlutunum á atvinnuleysisbótum, úr sjúkarsjóði einnig örorku og ellilífeyri. Um er að ræða persónugreinanleg gögn og trúnðaðarmál. Safnið er vel varðveitt.
Minnisbækur formanns eru teknar frá safni og settar hér í eina öskju. Bækurnar eru í góðu ástandi og mismikið í þær skrifað. Þetta eru ýmist gormastílabækur, stílabækur eða harðspjalda bækur.
Fylgiskjöl við rekstur Grunnskólans á Hólum. Gögnin eru sett saman eftir mánuðum og ártali og eru látin halda sér að mestu þannig, einhver hreinsun á sér stað á fjölprentuðu efni og bréfaklemmum, hefti ekki tekin. Gögnin eru í góðu ástandi.
Blað sem gefið var út á hverju ári vegna orlofsferða Skagfirskra húsmæðra sem Samband skagfirskra kvenna stóð fyrir. Skráningin tekur til blaða frá árunum 1973-1992 eða 20 árganga.
Fylgiskjöl byggingu Grunnskóla Hólahrepps. Bókhaldsgög, tékkhefti, greiðslukvittanir og fl. Gögnin líta vel út, eru látin halda sér nokkur vegin eins og þau voru flokkuð, elsta dagsetning neðst og yngsta efst. Hefti eru í gögnum en bréfaklemmur fjarlægðar. Hér eru 3 haldskrifaðar bókhaldsbækur um reikninga byggingar Barnaskólans á hólum frá 1974 - 1981. Settar neðst í öskju B - 1/3
Frá einkasafninu komu ýmis kort sem eru í góðu ásigkomulagi og þeim er haldið í sínu umbroti eins og þau komu. Skráning bílnúmers K kom í möppu frá safni sem var hreinsuð frá og nokkuð fyllt upp í upplýsingar bílnúmers.
Prentuð og handskrifuð gögn um sauðfé, yfirlitskýrslur, skrár um ásett hrútslömb og einkunn hrúta, einnig persónugreinanleg gögn og.fl. Sett hér í arkir eins og gögn koma frá möppu eftir ártali og látin halda sér að öðru leiti í uppruna.
Stílabók með görmum á kili, mynd af kisu á bókakápu. Bókin er handskrifuð línustrikuð í góðu ástandi. Útektir eru skráðar á bæjarheiti, ártal og bókaheiti.
Björn Egilsson og Hjalti Pálsson, staðfesta móttöku skjölum frá Maríu Rósmundsdóttur Efra - Ási 1975. Tilkynning um skipanir sveitastjórnar í nefndir í Hólahreppi1982, og bréf til stjórnar Rekstrarfélags Hólahrepps 1993 um hvort halda eigi áfram rekstri bókasafns undirritað Trausti Pálsson. Allt handskrifðuð gögn. Svo eru hér hin ýmsu pappírsgögn er lágu inn í bókum.
Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.