Fonds N00478 - Sparisjóður Hólahrepps

Identity area

Reference code

IS HSk N00478

Title

Sparisjóður Hólahrepps

Date(s)

  • 1926 - 2013 (Creation)

Level of description

Fonds

Extent and medium

17 öskjur af pappírsgögnum og bókum. Innpökkuð pappírsskjöl og bækur eru 5 pakkninga.

Context area

Name of creator

(1909 - 2004)

Biographical history

Í gögnum einkaskjalasafns Harðar Jónssonar er handskrifað ljósrit Útdráttur úr fundargerðum málfundarfélagsins " Hjalta " viðvíkjandi sparisjóð Hólahrepps. Þar segir: Árið 1909 þann 11 júlí hafði málfundarfélagið "Hjalti " til meðferðar málefni um stofnun sparisjóðs í Hólahreppi. Kom fram eindreginn vilji fundarins að koma sjóðnum á fót. Loks var málið rætt á aðalfundi sem haldin var á Hólum 28.des.1909 og kosin stjórn sjóðsins. "Vér undirritaðir stofnendur Sparisjóðs Hólahrepps tökumst hér með á hendur einn fyrir alla og allir fyrir einn 500. kr ábyrgð sem tryggingu fyrir því að sjóðurinn standi í skilum". 18 stofnfundarmenn undirrita á Hólum í Hjaltadal 28.des 1909. ( bréfsefni sett í ýmis gögn ). Gögnum ber ekki saman hvenær sparisjóður Hólahrepps var stofnaður því eins og segir í Gjörðabók Hólahrepps: Frá fyrsta degi janúarmánaðar 1915 er stofnaður sparisjóður Hólahrepps í Skagafjarðasýslu, stofnendur eru fyrst um sinn 12. Eins er það tekið fram hjá Afl sparisjóð ( linkur hér að neðan ) að sparisjóður Hólahrepps hafi verið stofnaður 1907.
Sparisjóðir voru staðbundnar stofnanir sem ætlað var að þjóna ákveðnum landsvæðum, með tilgang að gefa íbúm kost á að varðveita og ávaxta peninga sína en löggjöf þeirra varð strangari og takmarkaðri en bankanna.
Sparisjóðurinn hét Sparisjóður Hólahrepps þar til síðla árs 2004, þá Sparisjóður Skagafjarðar. Samruni varð síðan með Sparisjóð Siglufjarðar 13. ágúst 2007 og hinn sama dag var samruninn samþykktur í Sparisjóði Skagafjarðar. Bókhaldslegur samruni þeirra miðaðist við 1. janúar 2008. Sameinaður sparisjóður starfaði síðan undir nafni Sparisjóðs Siglufjarðar, þar til nafni hans var breytt í „Afl sparisjóð“ á fundi 18. apríl 2008. Í lok árs 2007, fyrir fall bankanna, námu heildareignir sparisjóðsins 8 milljörðum króna. https://www.rna.is/sparisjodir/skyrsla-nefndarinnar/5-bindi/21-kafli/.

Archival history

Gögn frá Sparisjóð Hólahrepps komu frá einkasafni Harðar Jónssonar, Hofi 2, oddvita Hólahrepps 1982 - 1990, og voru afhent á Héraðsskjalasafnið á Sauðárkrók þann 10.10.2023. Hörður Jónsson fæddist á Sauðárkróki 24. maí 1952 en ólst upp á Hofi 2 í Hjaltadal þar sem hann átti heimili æ síðan. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 22. ágúst 2023.

Immediate source of acquisition or transfer

Content and structure area

Scope and content

Gögn frá Sparisjóð Hólahrepps komu frá einkasafni Harðar Jónssonar, Hofi 2, oddvita Hólahrepps 1982 - 1990. Gögnin voru óhrein við komu og umfang mikið um 20 kassa af blönduðu safni Harðar. Þau voru flokkuð og hreinsuð og skipt niður í 3 söfn. N00476, N00477. N00478. Gögn voru látin halda uppruna eins og hægt var en vegna ýmist góðs skipulags gagna eða óreiðu voru þau sett í þau 3 söfn sem var unnin út frá rekjanleika og skipulagi.

Appraisal, destruction and scheduling

Gögnin voru óhrein og bækur hreinsaðar og gögn grisjuð af skjalamöppum, afritum og bréfaklemmum, þau eru flokkuð eftir ártali og málefnum.

Accruals

System of arrangement

Conditions of access and use area

Conditions governing access

Conditions governing reproduction

Language of material

Script of material

Language and script notes

Physical characteristics and technical requirements

Finding aids

Allied materials area

Existence and location of originals

Existence and location of copies

Related units of description

Related descriptions

Notes area

Note

Tveimur bókum var fargað sökum myglu og slæms ástands og tveimur færslubókum var komið fyrir á lokuðum stað pakkað inn í sýruþolin pappír og settar í frystingu, vegna þess sama.
Sparisjóðsgögnin voru sum hver skipulega lögð fram en þó einhver óreiða og sökum hennar og umfangs gagna er tekin sú ákvörðun að flokka einkasafnið eins og það er gert hér, miðað er við rekjanleika.
Þeim kortum sem birtust í safni var pakkað niður

Alternative identifier(s)

Access points

Subject access points

Place access points

Genre access points

Description control area

Description identifier

N00478

Institution identifier

IS-HSk

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Partial

Dates of creation revision deletion

26.10.2023 LVJ

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Sources

Byggðasaga Skagafjarðar VI. bindi. Hjalti Pálsson.

Archivist's note

Koma frá einkasafni Hörður Jónsson, oddvita Hólahrepps.

Accession area