Þorbjörg Þorvaldsdóttir og fjölskylda hennar. Þorbjörg var dóttir Þorvaldar Einarssonar og Láru Sigfúsdóttur á Sauðárkróki. Aftan á myndina er ritað: "Pjettur bróðir. Jeg sendi þjer mind af okkur en vonast til að fá mind af ykkur ef þið gjettið. Þín systir Þorbjörg."
Gunnlagur Sölvason og Guðríður kona hans. Börnin eru Björn, Stefán og Lilja. Myndin er tekin um 1901 eða 1902. Myndin er gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur á Sauðárkróki.
Tvö óþekkt börn með lamb. Myndin er tekin nyrst á Sauðárhæðum sunnan Sauðárkróks. Dettur í hug börn Ólafs Sveinssonar læknis og Ástu Karlsdóttur þau Guðríður og Karl.
Á myndinni er sex strákar. Aftan á myndina er handskrifað með penna: Friðjón Hjörleifsson 2 f.v. Það á við efri röðina. Einnig er handskrifað með blýanti: "Jón á Flugumýri."
Jónas Kristjánsson læknir (1870-1960) og kona hans Hansína Benediktsdóttir (1874-1948) ásamt þremur barna sinna. F.v. Guðbjörg, Ásta og Kristján. Sama mynd er einnig skráð í Hvis 908.
Tveir óþekktir drengir og hundur. Tilgáta: Bræður Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur. (Gunnar Sigurjónsson var afabróðir hennar og bjó á Ásvegi 14 á Akureyri.
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Aftan á myndina er skrifað: Antoniette og Eurico og ég. Þetta er sama sunnudaginn. Hjónin heita Carmine og Antoniette Mezzacappa og drengirnir eru Eurico. Mig þekkið þið býst ég við." Myndin er merkt með sömu rithönd og mynd nr 98.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Aftan á mynd er ritað: Gleðileg jól og nýjár. Arnþór og Jónas. Þeir eru synir Magnúsar Blöndal sem var fóstusonur Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur.
Þórarinn Andrésson og Hólmfríður Andrésdóttir. (Börn Andrésar Andréssonar klæðskerameistara og Halldóru Þórarinsdóttur). Aftan á mynd er skrifað: Þórarinn og Fríða Andrés
Aftan á mynd er skrifað: Magnús er voða kall mikill prakkari og óþægur með köflum. En Halla er miklu stilltari. Bæði ljóshærð hann með alveg hvítt hár.