Ferð Búvísindadeildar á Hvanneyri í Skagafjörð veturinn 1954. Hér er komið við í Flatatungu að skoða afkvæmi undan Glað 404 og þessi rauða ótammda 3ja vetra hryssa keypt af Árna í Keflavík en hún var í göngu þar. Nemendur handtakagóðir að koma henni á bíl. Frá Vinstri: Jaen de. Fontany. óþekktur.ekki nemandi. Óskar Eiríksson, Akureyri. Sigmundur Guðbjörnsson, Arakoti. Jón G. Jónsson, Broddanesi.
Haust 1953. Námsferð í Skagafjörð til að skoða og kaupa hross. Gunnar Bjarnason og Stefán Jónsson voru með. Framhaldsdeildin. Frá v. Sigmundur Guðbjarnason, Óskar Eiríksson, Árni Jóhannsson, Kjartan Georgsson, Sveinn Guðmundsson og Páll Sigurðsson, Fornahvammi sem keyrði.
Flatatunga, Skag. vetur 1953. Guðrún Oddsdóttir, Flatatungu býr sig af stað til að smala stóðinu. Einar E. Gíslason og Oddur Einarsson, bóndi í Flatatungu fylgjast með.
Flatatunga 1953. Nemendur í Framhaldsdeildinni á Hvanneyri skoðum tryppin í Flatatungu. Frá v. Gísli Einarsson, Sveinn Guðmundsson, Stefán Jónsson kennari, Einar E. Gíslason, Kjartan Georgsson og Óskar Eiríksson. Flest tryppin undan Glað 404 frá Flatatungu.
Flatatunga veturinn 1953. Nemendur í Framhaldsdeild á Hvanneyri skoðum tryppin í Flatatungu. Einar E. hefur fest kaup á veturgömlu mertryppi undan Glað 404 og heldur hann um háls á því en Sveinn Guðmundsson teimir, Óskar Eiríksson og Jón G. Jónsson, fylgjast með.
Haust 1953. Ferð í Skagafjörð til að skoða og kaupa hross. Gunnar Bjarnason og Stefán Jónsson voru með. Framhaldsdeildin. Páll Sigurðsson, Fornahvammi keyrði. Verið að koma hesti bílinn.
Hryssa m. afkvæmum Lukka 3390 frá Egilsstöðum, brún. (IS1957276276). Aðaleinkunn 7,65. 2. verðlaun nr. 4. Frá vinstri: 1. Gunnar Egilsson á Kolbak, 2. Ólafur Jónsson á Hrafnhettu og 3. Magni Björnsson á Lukku 3390, teymir Lukkuriddara.
Landsmótið á Hólum í Hjaltadal. Blesa 2712 frá Sauðárkróki, rauð hálfblesótt. (IS1948257001). Byggdómur 8,30. Afkvæmasýning, Sveinn Guðmundsson heldur í Blesu. Stefán Friðgeirsson, Dalvík heldur í Fjöður 2827 og Ólöf Jónsdóttir Rvík. með Hnotu 3233.
Hryssa m. afkvæmum Blesa 3380 frá Urriðavatni. (IS1961275376). Aðaleinkunn Blesu 7,83. Frá vinstri: 1. Gunnar Egilsson og Yngri-Blesa 2. Ólafur Jónsson og Eldri-Blesa 3. Elías Pétursson og Ljúfur. Öll frá Urriðavatni.