Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar brúagerð á Gönguskarðsá. Með liggur kostnaðaráætlun fyrir brúargerðina, rituð á pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður.
Skjal í folio stærð. Áskoranir almenns bændafundar sem haldinn var í Haganeshreppi. Varða m.a. launaviðbót til ljósmóður, þörf fyrir nýja brú yfir Fljótaá og viðgjörð á Móskógabrú.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur annað bréf í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður, ætlað til upplestrar á sýslufundi. Varðar það skógrækt og landgræðslu.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í foliobroti. Það varðar hugmyndir skagfirsku ungmennafélaganna um hátíðaröld á 100 ára afmælisdegi Jóns Sigurðssonar.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar vöruvöndum og mat á ullarvörum og er undirritað af nokkrum kaupmönnum.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar endurskoðun fjallskilareglugjörðar og gjörðir nefndar sem kosin var til að fjalla um þær. Skjalið er nokkuð litað af óhreinindum en annars heillegt.
Skjalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lausamennskubréf fyrir Stefán Guðlaug Sigmundsson til heimilis á Enni í Viðvíkursveit. Ástand skjalsins er gott.
Áskorunin er handskrifuð á pappírsörk í A5 stærð. Hún varðar rannsóknir á veiðivötnum. Með liggur minnismiði með uppkasti að áskorun. Ástand skjalsins er gott.
Skýrslan er skráð á pappírsörk í foliostærð. Þar gerir skýrsluritari grein fyrir verkþáttum og fjölda dagsverka og launum vegna vegavinnu í Hofshreppi sumarið 1900.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar nýtt fyrirkomulag á búnaðareftirlitsstarfsemi. Með liggur fjölritað blað með yfirskriftinni: "Ræktunarsamband Norðurlands og búnaðarlögin" og er það í A4 stærð.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.