Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 1546 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Jóhannes Geir: Málverkasafn Enska
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

1501 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

JG-215

Kyrralífsmynd af flösku og tveimur ávöxtum á borði. Myndin gæti verið frá 1945-1955.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-216

Landslagsmynd - óvíst hvaðan. Í bakgrunni má sjá fjall og líklega vatn. Myndin gæti verið frá 1960-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-219

Skissa af bíl sem ekur eftir götu í fjölbýli - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-231

Skissa af skipum í bátahöfn - líklegast í Reykjavík. Húsaþök má sjá í forgrunni. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-232

Skissa af nokkrum hestum við sjávarsíðuna - óvíst hvar. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-234

Skissa af húsaþyrpingu til hægri - óvíst hvar. Myndin er fremur óljós. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-235

Skissa af fjórum hestum í landslagi - óvíst hvar - mögulega við sjávarsíðuna. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-236

Mynd af víkingaskipi sem siglir í höfn með árar í lofti. Til vinstri má sjá mann og hesta. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-240

Mynd af vegi sem liggur af brú sem er til hægri fyrir miðju myndar - upp hæð að vinstra efra horni. Á veginum eru fjórir ljósastaurar. Í forgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir mynd og undir brúnna til hægri. Til vinstri eru hús. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-241

Landslagsmynd - óvíst hvar. Í forgrunni er rauður og gulur áberandi en í bakgrunni græn- og bláleit fjöll. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-247

Skissa af skipum í höfn - líklegast í Reykjavík. Í forgrunni má sjá húsaþök. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-249

Skissa af hesti í forgrunni til hægri og í bakgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir myndina og handan við hana er lítið hús. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-250

Landslagsmynd þar sem horft er á fjöll handan við fjörð. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-252

Skissa af skipum í höfn - líklegast í Reykjavík. Í forgrunni má sjá húsaþök. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-258

Skissa af gröfu. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-259

Landslagsmynd þar sem gulleitur stígur er í forgrunni en bláleit fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-262

Skissa af konu leiða lítið barn eftir götu - óvíst hvar. Á bakhliðinni hefur verið vatnslituð mynd af húsi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-274

Skissa af skipi sem siglir inn Elliðárvog. Í bakgrunni má sjá Grafarvog og Úlfarsfell. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-277

Skissa af húsaröð og í forgrunni er tré. Myndin er ekki teiknuð á hluta blaðsins og hægri hliðin því auð. Þar virðist hafa orðið vatnsskemmdir sem myndar sérkennilegt munstur. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-280

Landslagsmynd þar sem lítið hús eða skúr er í forgrunni og fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1985-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-284

Myndefnið er fjara í Reykjavík og í bakgrunni er Esjan. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-285

Skissa af manni á hestbaki á ferð eftir stíg í landslagi - óvíst hvar. Myndin gæti verið frá 1990-2000.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-290

Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Atriði úr Örlygsstaðabardaga þar sem Sturla tekur upp stein. Myndin er frá 1984.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-301

Æfingaskissa fyrir Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Menn á hestum í Skagafirði og í bakgrunni má sjá Mælifellhnjúk. Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-305

Æfingaskissa fyrir Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Myndefnið er líklegast Flugumýrarbrenna 1255. Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-306

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Skissa af tveimur drengjum sitjandi fyrir framan Sauðárkrókskirkju.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-312

Æfingaskissa fyrir Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Skissa af manni á hesti. Á bakhliðinni eru tvær andlitsmyndir sem búið er að krassa yfir. Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-329

Skissa af bókakápu Þurrt og blautt að vestan - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs - sem kom út árið 1990. Á myndinni er manneskja sem hjólar inn í skóg og í vinstra horni er mynd af flöskum.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-335

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Mynd af dreng fljóta í trékassa við bryggju. Drengurinn róar með spítu. Fyrir neðan myndina stendur: „No.1“.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-336

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Hestar draga heyvagn. Í bakgrunni má sjá kirkju við bæ - óvíst hvar - mögulega Reynisstað. Enn lengra má sjá Málmey. Fyrir neðan myndina stendur: „No. 16“.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-338

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Maður heldur á bakka - fullan af bakkelsi og talar við konu. Í bakgrunni má sjá mann handan við búðarborð. Fyrir neðan myndina stendur: „No.28.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-341

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Hópur fólks horfir á leikrit. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 31.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-349

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Á myndinni er hópur manna bogra við eitthvað á pallbíl. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 14.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-354

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Drengur aðstoðar mann við að smíða bát. Á myndinni stendur: „Sölvi bátasmiður“ en fyrir neðan hana stendur: „No. 4.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-356

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Við Sauðánna. Maður gengur með staf og drengir fleyta bát í ánna. Á milli þeirra má sjá brú yfir ánna. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 35.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-358

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Fólk hlustar á götupredikara (Runki). Í bakgrunni má sjá Sauðárkrókskirkju. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 23.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-359

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Fólk á bryggju og fer um borð í bát á leið sinni í skip sem sést í bakgrunni úti á hafi. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 30.“

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-377

Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Fólk saltar fisk á Eyrinni á Sauðárkróki. Í forgrunni er drengur að ýta á undan sér tunnu. Fyrir neðan mynd stendur: „No. 43“.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-382

Líkkista er borin upp Kirkjustíg upp Nafirnar á Sauðárkróki. Til hægri stendur kú. Myndin er líklega hluti af svokallaðri svörtuseríu Jóhannesar Geirs - þar sem myndefnin eru svipmyndir úr æsku hans á Króknum. Jóhannes Geir málaði samskonar mynd árið 1964 sem kallaðist „Jarðaför á Króknum“ - nema á þeirri mynd er ekki kýr.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-386

Skip á siglingu inn til Reykjavíkur. Í bakgrunni má sjá Esjuna. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-387

Skip á siglingu í ólgusjó. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-388

Ókláruð mynd af Skagafirði. Efst til vinstri má sjá Drangey en til hægri má sjá Málmey og hluta af Þórðarhöfða. Myndin gæti verið frá 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-390

Ókláruð mynd af því sem virðist vera fjall við fjörð - óvíst hvar en líklega er þetta Esjan og horft frá Reykjavík. Myndin gæti verið frá 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-401

Teikningin er leiðbeining um hvernig á að gróðursetja tré - sýnt í þremur þáttum. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-403

Teikning af tveimur laufblöðum. Fyrir neðan þau stendur: „Alaska-ösp“. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-411

Teikning af ýmsum gerðum laufblaða - m.a. hvítölur - álmur - bláösp og hlynur. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-418

Útskýringarmynd af tré og á myndinni er einnig sól. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-419

Leiðbeiningar um hvernig á að gróðursetja tré með bjúgskófluaðferð - eins og segir fyrir neðan teikningu. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-420

Myndaþáttur sem sýnir veðurfar eftir árstíðum. Fyrir neðan myndina er búið að skrifa ýmsar upplýsingar. Myndin var í umslagi merkt: „Allar skissur að teikningum í bók. „Æskan og skógurinn““. Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-426

Myndefnið er vegur sem sveigir til vinstri. Fyrir miðju má sjá staur en í bakgrunni er óþekkt fjall. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-431

Rétt sést í húsaþök á Sauðárkróki - þar sem horft er af Nöfunum yfir sjávarsíðuna. Handan við fjörðin má sjá fjöll. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-432

Skissa af hestum við hesthús - óvíst hvar. Vinstra megin á mynd er maður á hesti. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-434

Sjálfsmynd Jóhannesar Geirs þar sem er púki fyrir aftan hann og heldur utan um hann. Myndina hefur hann líklega teiknað á námsárum sínum - 1946-1949.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-437

Módelteikning af kvenmanni (Ástu Sigurðardóttur skáldkonu). Samskonar mynd var birt í bókinni um Jóhannes Geir (bls. 19) en þar segir um hana: „Módelteikning úr Handíðaskólanum.“ Myndin hefur því líklega verið teiknuð á árunum 1946-1948.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-444

Portrett líklega af klassískri styttu - þar sem áherslan er á andlit hennar en efri hluta höfuðs hennar vantar. Myndina hefur hann líklega teiknað á námsárum sínum - 1946-1949.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-447

Portrettmynd af óþekktum börnum - ungum strák og stelpu. Myndina hefur hann líklega teiknað á námsárum sínum - 1946-1949.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-448

Kyrralífsmynd með uppstillingu á m.a. þremur grænum flöskum - ávöxtum - dökkri krukku og bók. Myndin gæti verið frá 1945-1955.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-458

Gróflega skissuð landslagsmynd. Myndin gæti verið frá árunum 1965-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-465

Götumynd - óvíst hvar - mögulega í Hafnafirði. Í bakgrunni má sjá bakvip kirkju með rauðu þaki. Myndin er frá 1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-466

Skissa af manni á hestbaki eftir veg í landslagi. Til hægri má sjá lítið grænt hús með rauðu þaki. Fyrir miðju er stórt grænleitt ský. Myndin gæti verið frá 1985-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-473

Mynd af manneskju í grjótarnámu að kvöldi. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-475

Myndefnið er hús í landslagi og vinstra megin má sjá vörubíl keyra eftir vegi. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-477

Landslagsmynd þar sem hægra megin má sjá grýtta hlíð - til hægri er lítill runni og í fjarska er sólarlag. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-478

Myndefnið er óljóst - líklega einhverskonar runnagróður. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-479

Myndefnið er fólk í hestaferð. Þarna má bæði sjá söðlaða hesta og baksvipinn á manni á hestbaki. Myndin er frá 1982.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-482

Landslagsmynd teiknuð á bláan pappír. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-488

Landslagsmynd þar sem horft er yfir fjörð. Himininn er gráleitur og kvöldsólin á lofti. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-493

Skissa af bátum sem liggja á landi. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-496

Skissa af höfn þar sem þrír bátar liggja að bryggju - óvíst hvar. Í forgrunni eru tveir ljósastaurar og varnargarður hlaðinn úr grjóti. Á ljósastaurnum fremst stendur mávur. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-498

Skissa af fjórum hestum við hesthús - óvíst hvar en mögulega í Víðidal. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-505

Skissa af bátum sem liggja í fjöru. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-506

Skissa af bátum sem liggja á landi - óvíst hvar. Lengst til hægri er grænn skúr og bakgrunni eru fjöll. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-512

Baksvipur tveggja manneskja á höfn - þar sem tveir bátar liggja við bryggju. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-515

Landslagsmynd með rafmagnsmöstur til vinstri og fjöll í bakgrunni. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-520

Á myndinni er skip í slipp. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-521

Götumynd - óvíst hvar - mögulega í Þingholtunum. Á götunni keyrir vörubíll og manneskja gengur eftir göngustíg til hægri. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-523

Landslagsmynd með hólum í forgrunni en bláleit fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Litaskemað í myndinni er fremur fjólublátt - blátt og brúnt. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-524

Landslagsmynd þar sem sólin er sest á bakvið við fjöllin. Rauður og fjólublár eru áberandi litir í myndinni. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-525

Landslagsmynd - mögulega af Heiðmörk. Í forgrunni er runnagróður í haustlitum - þ.e. rauður og gulur - og í bakgrunni er fjall - mögulega Esjan. Myndin gæti verið frá 1985-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-526

Myndefnið er bátur sem stendur á landi. Á bátnum stendur manneskja og baksvip annarrar manneskju má sjá í forgrunni. Skipið virðist vera í Elliðárvogi en handan við voginn má sjá Grafarvog og Úlfarsfell. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-528

Hestamenn koma ríðandi eftir vegi sem sveigir niður litla hæð. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-530

Myndefnið er appelsínugult skip í höfn og í forgrunni má sjá baksvip tveggja manna. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-534

Húsþök að nóttu til í þéttbýli. Myndin í heild er mjög dökkleit. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-535

Skissa af vegi sem sveigir inn og út úr myndinni og sitthvoru meginn við hann er snjór að bráðna. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-538

Myndefnið er lítið hús með stóran akur í baksýn. Myndin ber evrópskan brag. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Niðurstöður 256 to 340 of 1546