Teikning séð frá sjónarhorni Jóh.Geirs þar sem hann liggur í sófa og teiknar sjálfan sig og umhverfi sitt - heima hjá sér. Myndin er gæti verið frá 1965-1985.
Skopmynd þar sem þrír menn standa saman við tröppur og einn þeirra heldur á flösku. Fyrir neðan stendur: „Vigurfrændi heimsóttur (af frændum og keflavíkurgöngumönnum)“ Myndin er gæti verið frá 1965-1985.
Skissa fyrir bókakápu á bók Jóhannesar Geirs - sem kom út 1985. Uppstillingin á skissunni kom nokkurn veginn út eins og bókin er. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1985.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan er af fjöru og er mjög lík þeirri mynd sem endaði á kápu bókarinnar - nema sú var teiknuð með Olíupastel. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan er af ströndinni í Skagafirði þar sem horft er yfir Drangey - Málmey og Þórðarhöfða. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan virðist vera af fjöru. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan virðist vera af fjöru. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa af því sem virðist vera lítið hús við sjávarsíðuna. Tveir fuglar eru á flugi - annar svartur en hinn hvítur. Myndin var skissuð fyrir Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er gæti því verið frá því um eða fyrir 1977.
Skissa af hestum á beit í landslagi. Á myndina hefur verið skrifað: „Í sumardölum.“ Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa af manni ríðandi á hesti sem er með stjörnu á enninu. Í skýjunum má greina mann á hestbaki. Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa af manni ríðandi á hesti sem er með stjörnu á enninu. Í skýjunum má greina mann á hestbaki. Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa af litlu húsi við sjávarsíðuna. Á myndina er skrifað: „Ýmis kvæði“. Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa af manni ríðandi á hesti - með tunglið og sérkennilegt skýjafar í bakgrunni. Á myndina er skrifað: „ath. eða Kvæðabók. Djáknin á Myrká. Stund og Staðir“ Á hann þá væntanlega við Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina.. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa af manni á hesti með sérkennilegt skýjafar í bakgrunni. Á myndina er skrifað: „Stund og staðir 10. rödd (eða kvæðabók.)“. Á hann þá væntanlega við Kvæðabók Hannesar Péturssonar og kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá um 1955-1962.
Teikning af konu sem situr í stól - líklega af Ástu Sigurðardóttur. Myndin er gæti verið frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Myndefnið er tveir hestar í forgrunni - einn rauður og annar grár. Lítið hús má sjá handan við á og fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.